Herbert Ingi Sigfússon skrifar frá Ásvöllum
Haukar 2 - 1 HK
1-0 Garðar Ingvar Geirsson (´68)
2-0 Garðar Ingvar Geirsson (´72)
2-1 Calum Þór Bett (´79)
1-0 Garðar Ingvar Geirsson (´68)
2-0 Garðar Ingvar Geirsson (´72)
2-1 Calum Þór Bett (´79)
Í byrjun leiks var jafnræði með liðunum og skiptust þau á að vera með boltann og sækja án þess að skapa sér einhver alvöru færi. Þanníg hélst það út allan hálfleikinn og áttu liðin nokkur skot sem markmenn liðana vörðu vel helst færi HK í fyrri hálfleiknum kom á 43. mínútu þegar Aaron Palomares var einn og óvaldaður inn í teig eftir hornspynu en skallinn frá honum fór yfir.
Haukar voru ekki lengi að snúa vörn í sókn og strax í næstu sókn átti Hilmar Geir Eiðsson gott skot sem Ögmundur Ólafsson náði ekki að halda og missti boltann frá sér og það virtist sem boltinn var á leiðinni inn en Ögmundur stökk á eftir boltanum og náði að handsama hann. Ekki komu fleiri færi í þessum fyrri hálfleik og staðan því markalaus þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði í rauninni allveg eins og sá fyrri með því að bæði lið voru að þreifa fyrir sér og áttu nokkur hálffæri en fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 68. mínútu. Þá tók varamaðurinn Sindri Örn Steinarsson innkast upp í hornið hægra megin á Hilmar Rafn Emilsson sem gaf fyrir og á nær stönginni var Garðar Ingvar Geirsson mættur og skaut boltanum í netið og Haukar komnir í 1-0.
Haukar voru ekkert á því að slaka á og fjórum mínútum síðar eða á 72. mínútu fékk Garðar Ingvar Geirsson sendingu innfyrir vörn HK og skaut boltanum framhjá Ögmundi í marki HK og staðan því orðin 2-0. HK tókst að minnka muninn á 79. mínútu en þá slapp Calum Þór Bett einn innfyrir og lagði boltann milli lappa Amirs Mehica í marki Hauka og staðan orðin 2-1.
Eftir markið settust Haukar heldur aftarlega og HK fór að sækja mun meira og á 87. mínútu átti Hörður Magnússon góða fyrirgjöf beint á kollinn á Calum Þór Bett sem skallaði boltann rétt yfir. Stuttu síðar á Rúnar Már S Sigurjónsson skot sem Amir í marki Hauka rétt náði að verja í horn og eftir hornið átti Hafsteinn Briem skalla yfir mark Hauka en HK náði ekki að skora jöfnunarmarkið og Haukar fengu dýrmæt 3 stig í toppbaráttunni.
Í þessum leik þá hefði kannski verið réttlátt að HK hefði náð að skora jöfnunarmarkið í lokin en svo varð ekki og sigur Hauka staðreynd. Ljóst er að með þessum sigri eru Haukar eru jafnir Selfoss að stigum með 19 stig í efstu sætunum og liðin mætast í næstu umferð á Selfossvelli en þar verður því á ferð stórleikur.
Lið Hauka: Amir Mehica; Jónas Bjarnason, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Goran Lukic, Þórhallur Dan Jóhannsson (F)(Sindri Örn Steinarsson); Hilmar Trausti Arnarsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Hilmar Rafn Emilsson(Enok Eiðsson), Hilmar Geir Eiðsson, Ásgeir Þór Ingólfsson; Garðar Ingvar Geirsson.
Lið HK: Ögmundur Ólafsson; Leifur Andri Leifsson, Davíð Magnússon, Ásgrímur Albertsson (F), Hörður Árnason; Hafsteinn Briem, Brynjar Víðisson (Hörður Magnússon), Almir Cosic, Rúnar Már S Sigurjónsson; Aaron Palomares (Calum Þór Bett), Þórður Birgisson(Zlatko Kirckic).
Ummæli eftir leik:
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari HK:
,,Það er auðvitað slæmt að tapa svona leik og við sitjum eftir með 14 stig á meðan þeir hoppa upp í 2.sætið en það er nóg eftir að deildinni ennþá, tvær umferðir eftir af fyrri umferð þannig að það er nóg eftir. Við þurfum bara rífa okkur upp og sækja þrjú stig á móti Skagamönnum ef við ætlum að reyna halda okkur inní þessari baráttu."



