Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 22:40
Alexander Freyr Tamimi
Baldur Ingimar: Sárt að sjá á eftir Willum
Baldur Ingimar Aðalsteinsson var mjög ósáttur með leikinn í dag.
Baldur Ingimar Aðalsteinsson var mjög ósáttur með leikinn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
„Það má segja það að þetta hafi verið mjög dapurt. Við gefum þeim náttúrulega fyrsta markið á silfurfati og þeir nýta sér það og koma síðan á fullu á okkur, og rúlla okkur upp eins og maður segir á góðri íslensku,“ sagði Baldur Ingimar Aðalsteinsson við Fótbolti.net eftir niðurlægjandi 5-0 tap liðsins gegn Íslandsmeisturum FH í Pepsi-deild karla í kvöld.

FH-ingar skoruðu strax á upphafsmínútum leiksins og eftir það var leikurinn bara einstefna af þeirra hálfu. Baldur segir að markið hafi virkað sem kjaftshögg á Valsliðið og að FH-ingarnir séu einfaldlega sterkasta liðið í deildinni.

„Að fá mark á sig eftir fimm mínútur var náttúrulega kjaftshögg og menn náðu sér ekkert á strik eftir það. Við gerðum FH-ingunum þetta allt of auðvelt fyrir. Þeir eru með gott lið, það vita það allir, en við vorum náttúrulega bara ekki til staðar. Þeir hafa sýnt það undanfarið að þeir bera höfuð og herðar yfir öll önnur lið í þessari deild eins og sést á töflunni en bilið á milli þessara liða (FH og Vals) er ekki svona stórt.“

„En núna erum við náttúrulega á tímamótum og það þýðir ekkert annað en að girða sig í brók, en við bíðum bara eftir því að það komi nýr þjálfari og við getum ekki annað gert en tekið okkur saman í andlitinu og komið sterkir til leiks.“


Willum Þór Þórsson þjálfari Vals yfirgaf félagið í gær mjög skyndilega og viðurkennir hann að það hafi verið óvænt. Bætir hann því við að tímasetningin hafi ekki verið sérlega góð. Hann segir skiptar skoðanir vera í liðinu um brotthvarf hans en kveðst sjálfur sjá á eftir honum.

„Mér fannst það frekar óvænt að þetta skyldi koma upp í gær svona snöggt og það gefur auga leið að það er ekki kjörið að fá þetta í andlitið daginn fyrir mikilvægan leik. Ef við hefðum unnið værum við að dóla þarna með þeim en núna er þetta bara búið hjá okkur. Við hljótum bara að setja stefnuna á það að tryggja okkur Evrópusæti,“ sagði Baldur.

„Þetta er stór hópur og það eru náttúrulega misjafnar skoðanir á því (að Willum sé farinn). Ég hef náttúrulega verið með Willum síðan 2004 og gengið með honum í gegnum mína bestu og verstu daga og það var mjög sárt að sjá á eftir kallinum. Willum er náttúrulega frábær þjálfari eins og árangur hans sýnir og ég er alveg viss um að hann á eftir að mæta sterkur til leiks einhversstaðar annars staðar og gera góða hluti.
Slapp
banner