Kristján Hauksson, leikmaður Fram var sáttur með frammistöðu liðsins er liðið sigraði TNS 2-1 í Evrópudeildinni í fyrri leik liðanna í kvödl. Hann var samt sem áður hálf svekktur með úrslitin.
Kristján lék í hjarta varnarinnar í kvöld ásamt því að bera fyrirliðabandið þar sem Auðun Helgason er í banni í Evrópukeppninni.
,,Ég er hálf svekktur að hafa ekki unnið þetta stærra, en það var gott að koma til baka. Þetta var klaufalegt mark sem við fengum á okkur og þegar leið á leikinn tókum það okkur svona 15-20 mínútur til að finna okkur. Við vorum bara miklu betra lið en þeir og þegar leið á leikinn þá kom það bersýnilega í ljós," sagði Kristján eftir leikinn við Fótbolti.net.
,,Ég er bara nokkuð sáttur með stærsta part leiksins, en mér fannst við geta nýtt færin betur alla vega tvö færi, hefði mátt enda 4-1. Það hefði getað gert seinni leikinn þægilegri," sagði hann enn fremur.
Fram heldur nú til Wales í næstu viku að leika síðari leikinn í rimmunni, en hann telur þetta ágætt veganesti.
,,Jájá fínt, mætti vera stærra eins og ég sagði, en við höfum trú og við sjáum núna hvernig þeir spila og ég held að við vitum allir að við séum betri en þeir. Við klárum þetta úti."
Kristján bar fyrirliðabandið í kvöld enþetta er í þriðja skiptið sem hann fær þann heiður að gera það. Það var þó stærra í kvöld þar sem þetta var Evrópuleikur.
,,Tilfinningin er mjög góð, ég er búinn að gera þetta tvisvar áður í sumar og þetta er mjög gaman, sérstaklega í Evrópuleik. Það er mikil tilhlökkun að fara út og aðeins að fá frí í vinnunni og svona," sagði Kristján léttur að lokum.



