Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 22:55
Fótbolti.net
1.deild umfjöllun: Leiknir með þriðja sigurleikinn í röð
Viktor Bjarnason skrifar úr Breiðholti
Kári Einarsson kom Leikni á bragðið í kvöld og hér fagnar hann marki sínu.
Kári Einarsson kom Leikni á bragðið í kvöld og hér fagnar hann marki sínu.
Mynd: Matthías Ægisson
Ólafur Hrannar Kristjánsson fagnar í kvöld.
Ólafur Hrannar Kristjánsson fagnar í kvöld.
Mynd: Matthías Ægisson
Leiknir 3 - 2 Víkingur Ólafsvík
1-0 Kári Einarsson
2-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson
2-1 Fannar Hilmarsson
3-1 Brynjar Orri Bjarnason
3-2 Josip Marusevic

Leiknismenn unnu sinn þriðja sigur í röð þegar þeir lögðu Víking Ólafsvík 3-2 á heimavelli sínum í kvöld. Eftir þennan sigur er Leiknir með tólf stig en Ólafsvíkingar eru í neðsta sætinu með sex stig.

Fyrsta mark leiksins kom á 12. mínútu en fram að því hafði nákvæmlega ekkert gerst í leiknum. Helgi Pjetur Jóhannsson vann boltann á miðjunni, lék framhjá þremur leikmönnum Víkings af harðfylgi. Hann kom boltanum til Kára Einarssonar sem afgreiddi boltann í fyrsta niðri í nærhornið, framhjá Einari Hjörleifssyni í marki Víkings.
Skömmu síðar fengu Leiknismenn sannkallað dauðafæri þegar Fannar Þór Arnarsson sendi á Helga Pjetur sem var einn á auðum sjó gegn Einari í markinu. Helgi skaut strax í stað þess að fara nær markinu, skotið arfaslakt og beint á Einar.

Eftir þetta voru Víkingar ívið sterkari í leiknum. Hurð skall nærri hælum upp við mark Leiknis í nokkur skipti. Þar á meðal þegar Alfreð Elías Jóhannsson átti skalla rétt framhjá og þá missti Eyjólfur Tómasson, markvörður Leiknis, boltann eftir hornspyrnu. Boltinn féll fyrir fætur sóknarmanns Víkings sem skaut bara í þvögu á marklínunni. Þór Steinar Ólafs átti einnig skot en boltinn naumlega framhjá úr upplögðu færi.

Leiknismenn með 1-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks. Síðari hálfleikur var fremur rólegur framan af eða þar til Leiknir náði skyndisókn eftir þunga sókn gestaliðsins. Steinarr Guðmundsson fékk boltann á miðjunni og gaf hann innfyrir á Ólaf Hrannar Kristjánsson sem komst einn í gegn. Ólafur hamraði boltann framhjá markverði Víkinga og Leiknir komst í 2-0.

Víkingar minnkuðu muninn strax í næstu sókn á eftir. Það kom stungusending innfyrir vörn Leiknis, varnarmaður gerði mistök og Fannar Hilmarsson setti boltann af yfirvegun framhjá Eyjólfi markverði. Skömmu seinna fékk Kári Einarsson ágætis færi eftir góðan sprett en náði ekki að bæta við marki fyrir Leikni.

Þegar um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Brynjar Orri Bjarnason og kom Leikni í 3-1. Markið kom eftir aukaspyrnu frá Steinarri Guðmundssyni, Brynjar skallaði boltann laglega í fjærhornið.

Í viðbótartíma minnkuðu Víkingar muninn úr vítaspyrnu þegar Halldór Kristinn Halldórsson var dæmdur brotlegur. Josip Marosevic tók spyrnuna af öryggi en tíminn var of naumur fyrir gestina og Leiknismenn náðu í öll þrjú stigin.
Slapp
banner
banner
banner
banner