U17 landslið kvenna tapaði 2-1 fyrir hollendingum í kvöld en um var að ræða síðasta leik liðsins í riðlakeppni opna Norðurlandamótsins.
Íslensku stúlkurnar byrjuðu leikinn betur og komust í 1-0 með marki frá Ástu Eir Árnadóttur eftir rúmlega hálftímaleik. Hollendingar jöfnuðu leikinn á 67 mínútu og aðeins sex mínútum síðar fékk varnarmaðurinn Heiðrún Sara Guðmundsdóttir að líta rauða spjaldið.
Hollenska liðið bætti svo við marki á 82 mínútu og niðurstaðan því 2-1 tap hjá íslenska liðinu. Liðið fer því í gegnum riðlakeppnina án stiga að þessu sinni og mætir Dönum í leik um 7.sætið á mótinu á laugardag.




