,,Þetta var keimlíkt og síðasti leikur nema þá var þetta öfugt. Þetta var jafn grátlegt og þetta var sætt í síðasta leik. Þetta var ansi týpískt mark í lokin þar sem boltinn dettur niður í einhverju klafsi og þeir ná að pota boltanum stöngin inn,“ sagði Jónas Guðni Sævarsson svekktur í lok leiks.
KR-ingar lögðust svolítið aftarlega þegar líða tók á leikinn og Stjörnumenn sóttu á þá í gríð og erg en Jónsi fanst markið ekkert endilega liggja í loftinu.
,,Þeir voru ekkert að spila en voru búnir að setja þessa löngu bolta og voru að freistast til að reyna að ná að flikka honum inn fyrir. Við vorum bara sterkir í því en það sem við klikkuðum á var að miðjan var dottin langt ofan í vörnina. Við hefðum átt að ýta henni framar og þar af leiðandi sóknarmönnunum framar til að geta sett meir pressu á sóknarmennina sem voru að senda þessa bolta inn fyrir vörnina.“
Þrátt fyrir svekkjandi síðbúið mark er ekki annað hægt að lesa úr Jónasi en að honum hafi þótt jafnteflið sanngjarnt.
,,Fyrri hálfleikurinn var fínn. Við vorum búnir að ákveða að mæta betur til leiks þar sem við vorum á rassgatinu á móti Blikum og mér fannst það takast. Við unnum fyrri hálfleikinn sanngjarnt og við ætluðum náttúrulega að vinna seinni hálfleikinn líka og taka þessi þrjú stig sem voru í boði en það tókst ekki og seinni hálfleikurinn var dapur að mínu viti."
Það er ekki hægt að skilja við Jónas án þess að spyrja hann hinnar klassísku spurningar um gervigrasið.
,,Við höfum allir spilað á gervigrasi í fullt af leikjum svo það er erfitt að kvarta undan því en vissulega er það öðruvísi en engin afsökun,“ sagði Jónas hógvær.



