Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:05
Sigmann Þórðarson
Bjarni Jóh: Ótrúlegur kraftur og viljinn alveg gríðarlegur
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
,,Við vörðum bara stigið. Þegar uppi var staðið var þetta ansi tæpt hérna í lokin. Ég er bara ansi ánægður með að mínir menn hafi jafnað leikinn því það var ótrúlegur kraftur í liðinu og viljinn alveg gríðarlegur að fá eitthvað meira út úr þessu heldur en að liggja hérna í tapi,“ sagði Bjarni Jóhannsson kampakátur þjálfari Stjörnunnar eftir 1-1 jafntefli gegn KR í kvöld.

Jafnteflið mátti ekki tæpara vera en markið kom með nánast síðustu snertingu leiksins. Bjarni var því orðinn ansi efins um að fá eitthvað út úr þessum leik.

,,Að sjálfsögðu, en við höfum svo sem leikið þennan leik áður að skora seint í leikjum og við hefðum trú á því enda gefumst við aldrei upp.“

Þrátt fyrir að þetta hafi staðið tæpt fannst Bjarna úrslitin vera sanngjörn. ,,Miðað við gang leiksins þá fannst mér þetta sanngjarnt stig. Þetta var frekar kraftabolti frekar en einhver sambabolti hérna á þessu rennislétta teppi okkar.“

Nýliðarnir hafa byrjað mótið vel eins og um er talað en margir eru þó að bíða eftir því að þetta Öskubuskuævintýri taki enda. Bjarni segir sína menn vera lítið að spá í því.

,,Við bara njótum stundarinnar. Við erum bara jákvæðir og erum ekkert að velta því fyrir okkur. Auðvitað er fullt af fólki sem vonar að okkur fari að fatast flugið, það gefur augaleið. Það skiptir bara mestu máli hvað við erum að gera og hvernig við högum okkur.“

Bjarni segist hafa áhyggjur af því að sínir menn fari að hugsa um það hvenær þetta góðæri taki enda en hefur þó hæfilega miklar áhyggjur af því.

,,Jú jú, sjálfsagt tekur allt enda en við vonum bara að það verði einhvernímann í desember.“

Stjörnumenn fengu á sig enn eitt vítið í sumar en Bjarni hefur engin svör við þeirri tölfræði.

,,Við höfum allvega ekki fengið neitt víti en fengið á okkur nokkur. Það er kannski ekkert óeðlilegt við það. Þetta eru kannski svona klókir sóknarmenn sem eru að sækja þetta,“ sagði Bjarni rólegur.
Slapp
banner
banner