Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Þorvaldur Örlygsson: Við vöknuðum við markið
Þorvaldur Örlygsson
Þorvaldur Örlygsson
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram var að vonum sáttur með 2-1 sigur liðsins á TNS frá Wales í Evrópudeildinni í kvöld.

Fram sigraði 2-1 eftir að hafa lent undir í leiknum, en liðið virðist hafa vaknað við þessa vatnsgusu og tekur með sér ágætt veganesti í útileikinn sem verður háður eftir viku.

,,Þetta var þokkalegur leikur og ég er bara ánægður með að fara 2-1 út úr honum, þó svo ég hefði vilja að við hefðum skorað fleiri mörk. Við fengum nóg af færum í seinni hálfleik til að skora og fara út með 3-1, en við munum setja leikinn upp þannig að við komumst áfram úr þessari tveggja liða rimmu," sagði Þorvaldur í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn.

,,Fyrstu 20 mínúturnar voru svolítið stress og erfiðir að koma okkur í gang, við vorum með feilsendingar í stressi, en kannski eftir að við fengum markið á okkur þá fannst mér við komast inn í þetta og vorum með leikinn í okkar höndum eftir það," sagði hann enn fremur.

Steve Evans, fyrirliði TNS kom liðinu yfir á 24. mínútu leiks, en Fram virðist hafa vaknað við það og kom liðið tvíeflt til leiks.

,,Eftir að við skoruðum markið þá vöknuðum við. Það er kannski það jákvæða við það að hafa fengið markið á sig að við vöknum við það. Kannski hefði verið betra að fá það fyrri og hafa lengri tíma til þess að skora, en eins og ég segi, það er alltaf slæmt að fá á sig mark en við vöknuðum við það."

,,Ég hefði viljað fá fleiri mörk, en ég tel að þetta sé alla vega betra en ekki neitt. Ég vona að verðum þokkalega stemmdir, það er svona um það bil 7 og hálf mínúta síðan við kláruðum þennan leik þannig við erum ekkert farnir að hugsa út í það,"
sagði hann að lokum aðspurður út í síðari leikinn.
Slapp
banner