Andrew Cale, þjálfari The New Saints F.C. frá Wales var sáttur með úrslitin gegn Fram í kvöld þegar liðið tapaði 2-1, en hann segir útimarkið hjálpa mikið til fyrir seinni leikinn.
,,Við byrjuðum mjög vel og ég er ánægður með útimarkið sem er gott fyrir okkur. Svo komum Fram inn í leikinn og þeir urðu betri, og við vorum ekki jafn öryggir á boltann. Við urðum fyrir vonbrigðum með úrslitin, en erum ánægðir með að við þurfum bara að vinna 1-0 til að komast áfram," sagði hann í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn.
,,Mér fannst frammistaðan ágæt, en þetta er fyrsti leikur tímabilsins. Öðruvísi æfingar fyrir alvöru leik á tímabilinu, þannig það var búist við að við yrðum þreyttir og slappir í leiknum, en nú höfum við eina viku til þess að bæta fyrir það í seinni leiknum," sagði hann enn fremur.
TNS komst í 1-0 eftir mark frá fyrirliðanum Steve Evans á 24. mínútu, en Fram kom til baka og skoraði tvö mörk sem tryggði liðinu sigur.
,,Ég held að Fram liðið hafi spilað betur, þegar við skoruðum þá vissu þeir að þeir yrðu að gera eitthvað. Þeir urðu betri, en við byrjuðum að spila illa. Þeir semsagt urðu betri, og frammistaða okkar fór aftur. Yfir allt þó er rimmann í ójafnvægi, þannig ef Fram skorar fyrst þá hafa þeir yfirhöndina, en ef við skorum fyrst þá höfum við hana. Þannig að við munum sjá."
,,Þetta er gott veganesti fyrir okkur. Í fortíðinni höfum við í 2-3 tilvikum í Evrópukeppni ekki náð marki á útivelli, þannig þetta er í fyrsta sinn sem við skorum mark á útivelli þannig það er gott veganesti fyrir okkur," sagði Cale að lokum.


