Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 23:23
Alexander Freyr Tamimi
Heimir Guðjónsson: Það verður að sprauta mannskapinn
Heimir Guðjónsson gat verið sáttur með sína menn í kvöld.
Heimir Guðjónsson gat verið sáttur með sína menn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Heimir Guðjónsson þjálfari FH var að vonum mjög ánægður með 5-0 sigur sinna manna gegn þjálfaralausu liði Vals í Pepsi-deild karla í kvöld. Lærisveinar Heimis voru komnir í 3-0 þegar rúmar 20 mínútur voru liðnar af leiknum en sjálfum fannst honum þetta ekki vera alveg búið fyrr en þeir bættu við fjórða markinu.

„Mér fannst þetta vera mjög góður leikur af hálfu FH liðsins. Við vissum það að Valsararnir eru náttúrulega búnir að reka Willum og það er oft þannig að þegar það er skipt um menn í brúnni kemur smá innspýting inn í leikmannahópa. Við vissum að þeir myndu mæta baráttuglaðir og við vorum tilbúnir í þetta og spiluðum oft á tíðum góðan fótbolta. Við unnum þá sanngjarnt,“ sagði Heimir við Fótbolti.net eftir leikinn.

„3-0 var góð staða en Valur er með góða leikmenn og mér fannst þetta nú ekki vera klárt fyrr en í 4-0. Ég er náttúrulega bara ánægður með að liðið spilaði góðan sóknarbolta og spilaði í fáum snertingum. Það var góð hreyfing á mönnum og þegar við erum að gera þetta eru hlutirnir að ganga vel hjá okkur. Ég gerði mér vonir um að vinna leikinn og við lögðum upp með það, en 5-0, það átti enginn von á því.“

„Ég held að þetta hljóti að hafa verið einn af betri leikjum liðsins og nú er bara næsta mál að koma okkur niður á jörðina. Það er erfiður bikarleikur í Eyjum á sunnudaginn og menn verða að vera klárir þá.“


Þegar fréttaritari Fótbolti.net kom að búningsklefa FH til að fá viðtal var verið að sprauta alla þá FH-inga sem þar voru inni og þurfti hann að bíða eftir að Heimir yrði búinn í sinni sprautu. Heimir segir að þetta sé til að halda mönnum hraustum í komandi Evrópuleik gegn Aktobe í Kasakstan.

„Við erum náttúrulega að fara í Evrópuleik í Kasakstan og það þarf eitthvað að sprauta mannskapinn svo að menn veikist ekki og geti spilað fótbolta. Ég veit ekkert hvað þetta er samt, þú verður að spyrja lækninn um það,“ sagði Heimir og bætti hann því við að hann hefði ekkert kortlagt andstæðingin ennþá af viti.

„Bara lítillega, við erum náttúrulega að spila á fimmtudaginn og svo á sunnudaginn, og þegar það er búið getum við farið að spá í þennan leik.“
Slapp
banner
banner