Arnar Bergmann Gunnlaugsson annar þjálfari Skagamanna var ósáttur við að sínir menn skyldu ekki sigra Víkingana í leiknum í kvöld. Arnar sem einnig er leikmaður liðsins stjórnaði liðinu í kvöld af bekknum líkt og undanfarna leiki.
„Þetta var lélegt, sérstaklega í seinni hálfleik. Þrátt fyrir að við spiluðum illa að þá vorum við samt með tökin á leiknum og því óþarfi að tapa niður forskotinu. Þetta var auðvitað frábært skot hjá Víkingnum (Pétri Erni Svanssyni) sem jafnaði leikinn) og flott mark en síðan fengum við tækifæri í lokin til að gera útum þetta en það tókst ekki" sagði Arnar við Fótbolti.net eftir leikinn.
Leikurinn var ansi kaflaskiptur og mikil barátta. Víkingar fengu 5 hornspyrnur í byrjun fyrri hálfleiks og Skagamenn síðan 4 hornspyrnur í byrjun seinni hálfleiks.
„Þeir breyttu aðeins um taktík í seinni hálfleiks og byrjuðu að kýla boltann frá og við réðum ekki við það en settum síðan pressu á þá og fengum eins og þú segir 4 - 5 hornspyrnur en við áttum að klára leikinn þarna í lokin. Þeir gerðu vel í fyrra færinu sem við fáum í lokin og hann Magnús Þormar varði á ótrúlegan hátt og seinna færið var algjör "deddari" en það voru nú engin svaka gæði samt í þessum leik.
Fyrri hálfleikurinn var skárri en um leið og Bjarki fór útaf að þá vantaði uppá fótboltalegu gæðin hjá okkur."
„Við ætluðum auðvitað að vera með fleiri stig en þetta er bara töff deild og ef þú gerir mistök að þá er þér bara refsað. Ég veit reyndar ekkert hvernig hinir leikirnir fóru en vonandi höfum við ekki misst þá lengra fram úr okkur en þeir voru fyrir leikinn.
Við auðvitað stefnum á að fara upp um deild en með svona framistöðu verðum við bara fastir í þessari deild. Það er bara staðreynd, það þarf að gera betur en þetta. Ef menn nýta ekki færin og fá á sig mörk í hverjum leik að þá er það algjör hörmung" sagði Arnar um framhaldið hjá ÍA.
„Við erum að kíkja hingað og þangað. Það er ekkert vitlaust að hafa augun opin en við erum ekkert að fara að fá menn bara til þess að fá menn. Við þurfum að fá réttu týpurnar og við vitum alveg hvernig týpur það eru og ef við finnum þær ekki að þá verðum við bara með óbreyttan hóp.
Trausti var eini markmaðurinn liggur við bæði í meistaraflokki og í 2. flokki og það er búið að vera mikið álag á honum. En hann er búinn að vera að standa sig vel uppá síðkastið og við erum búnir að fá annan 2. flokks markmann í staðinn. En síðan verðum við að sjá hvað gerist með Pál Gísla ( Aðalmarkmann Skagamanna ) við vitum ekki alveg hvort að hann verði klár í seinni hlutann og ef svo er að þá þurfum við ekkert á öðrum markmanni að halda " sagði Arnar aðspurður um hvort að þeir væru á leiðinni að styrkja liðið og þá sérstaklega markmannstöðuna eins og sögusagnir hafa verið um.
Spurður um stöðuna á sér og Jóni Vilhelm Ákasyni en þeir eru báðir búnir að vera meiddir svaraði Arnar.
„Ég verð allavegana klár í næsta leik og vonandi Jón líka, við þurfum á öllum okkar reynsluboltum að halda."
„Það verður að skemmta sér um helgina þrátt fyrir þetta" sagði Arnar hlægjandi er hann var spurður hvort að þeir hefðu ekki viljað byrja Írska Daga með sigri

