Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:45
Sigmann Þórðarson
Umfjöllun: KR bragðaði á sínu eigin meðali í Garðabænum
Björgólfur Takefusa skorar úr vítaspyrnunni.
Björgólfur Takefusa skorar úr vítaspyrnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Tryggvi Sveinn var frábær í liði Stjörnunnar. Hér stelur hann boltanum af Prince Rajcomar.
Tryggvi Sveinn var frábær í liði Stjörnunnar. Hér stelur hann boltanum af Prince Rajcomar.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Aldrei hafa fleiri áhorfendur komið á Stjörnuvöll en í kvöld.
Aldrei hafa fleiri áhorfendur komið á Stjörnuvöll en í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Stjarnan 1-1 KR
0-1 Björgólfur Takefusa (30, víti)
1-1 Tryggvi Sveinn Bjarnason (94)

Stjörnumenn náðu dramatísku jafntefli við KR-inga í Garðabænum í kvöld en jöfnunarmarkið kom í uppbótartíma.

KR-ingar fengu því að kynnast því að vera báðu megin við borðið í dramatískum endalokum því skemmst er að minnast þess þegar þeir sigruðu Blika á heimavelli sínum með marki í uppbótartíma á mánudaginn síðast liðinn.

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og var aldrei leiðinlegur þó ekki hafi verið mikið um færi eða skemmtileg tilþrif. Heimamenn voru meira með boltann en KR-ingar lágu meira og meira til baka eftir því sem áleið leikinn og beittu þess í stað hröðum sóknum sem oft á tíðum voru hættulegar. Sú taktík er þó tvíeggja blað því á endanum uppskáru Stjörnumenn árangur erfiðisins og náðu sanngjörnu jafntefli.

Leikurinn byrjaði af krafti og strax á fyrstu mínútu fengu heimamenn hornspyrnu sem Tryggvi Sveinn Bjarnason skallaði rétt framhjá KRmarkinu. Nokkrum mínútu síðar voru varnamenn Stjörnunnar í einhverjum vandræðum að hreinsa frá eftir sókn KR sem endaði með því að Prince Rajcomar komst í boltann en skot hans fór í varnarmann. Prince skoraði síðan mark stuttu síðar sem dæmt var af vegna rangstöðu.

Tryggvi Sveinn bjargaði svo frábærlega fyrir Stjörnumenn þegar hann renndi sér á eftir Prince Rajcomar sem var að sleppa inn fyrir vörnina. Tryggvi átti fínan leik í dag ásamt félaga hans í vörninni Daníeli Laxdal en á þeim félögum stoppuðu flestar sóknir gestanna.

Baldur Sigurðsson var nálægt því að koma gestunum yfir eftir 25 mínútna leik. Þá fékk hann sendingu inn fyrir vörn Stjörnunnar en náði ekki að nýta þetta ágæta færi.
Það var svo ekki nema nokkrum mínútum síðar að önnur sending gestanna slapp inn fyrir vörn heimamanna. Í þetta sinn var það Óskar Örn Hauksson sem fékk sendinguna og setti stefnuna á mark Stjörnunnar. Bjarni Þórður kom út úr markinu og var dæmdur brotlegur þegar hann skutlaði sér fyrir fætur Óskars. Björgólfur Takefusa fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Gestirnir voru því yfir í hálfleik og var það hugsanlega sanngjörn staða. Heimamenn komu hins vegar ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og tóku yfirhöndina mjög snemma. KR-ingar drógu sig alltaf lengra og lengra til baka og gáfu Stjörnumönnum mikinn tíma til að athafna sig og dæla boltum fram á við.

KR-ingar vörðust vel framan af og fátt benti til annars en að þeir næðu að landa sigri enda gekk heimamönnum ekkert að skapa sér færi enda eina ráð þeirra að dæla háum boltum fram á við. Það fór hins vegar þannig að barátta heimamanna skilaði sér.
Boltinn barst í enn eitt skiptið inn í teiginn. KR-ingar komu boltanum ekki frá eftir mikla pressu heimamanna. Daníel Laxdal komst til boltans og sendi hann í átt að fjærstönginni þar sem félagi hans Tryggvi Sveinn var sem setti boltann af harðfylgi í markið og náði að jafna með einum af síðustu snertingu leiksins.

Eftir jafnteflið þokast KR-ingar upp töfluna og sitja nú í 2. sæti, en þó 9 stigum á eftir FH-ingum. Stjörnumenn eru stigi á eftir þeim í 3. sætinu og virðast engan vegin á þeim buxunum að gefa eitthvað eftir.

KR: Stefán Logi Magnússon, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Mark Rutgers, Jordao Diogo, Jónas Guðni Sævarsson, Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Hauksson, Prince Rajcomar, Björgólfur Takefusa.

Stjarnan: Bjarni Þórður Halldórsson, Guðni Rúnar Helgason, Tryggvi Bjarnason, Daníel Laxdal, Hafsteinn Helgason, Björn Pálsson, Birgir Birgisson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Halldór Orri Björnsson, Ellert Hreinsson, Arnar Már Björgvinsson.

Maður leiksins: Tryggvi Sveinn Bjarnason.
Áhorfendur: 1459
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr.
Aðstæður: Gervigrasið iðagrænt og fallegt.
Slapp
banner