Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:53
Hafliði Breiðfjörð
Umfjöllun: Sanngjarnt jafntefli í Kópavogi
Úr leiknum á Kópavogsvelli í kvöld. Kári Ársælsson skallar en Jónas Grani Garðarsson er á neðri hæðinni.
Úr leiknum á Kópavogsvelli í kvöld. Kári Ársælsson skallar en Jónas Grani Garðarsson er á neðri hæðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Ásgeir Aron Ásgeirsson og Arnar Sigurðsson eigast við.
Ásgeir Aron Ásgeirsson og Arnar Sigurðsson eigast við.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Arnar og Tómas Leifsson í baráttunni.
Arnar og Tómas Leifsson í baráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Breiðablik 0-0 Fjölnir

Það var fínt fótboltaverður fyrr í kvöld þegar að Breiðablik og Fjölnir áttust við í Kópavoginum og bjuggust margir við spennandi leik. Fyrir leikinn voru Fjölnismenn í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 4 stig meðan Blikar voru í 7. sæti með 11 stig.

Strax í upphafi leiksins átti Arnar Sigurðsson, leikmaður Blika, góðan skalla á mark eftir sendingu af vinstri kanti en Hrafn Davíðsson markamaður Fjölnis var vel vakandi og greip boltann.

Stuttu síðar hirti Arnar Sigurðsson boltann af varnarmanni Fjölnis sem vissi ekkert hvað var í gangi, Arnar sendi boltann á nafn sinn, Arnar Grétarsson, sem átti þrumuskot rétt fyrir utan teig en Hrafn náði að verja vel í horn.

Næsta korterið var frekar dapurt hjá báðum liðum og gerist ekkert fyrr en á 24 mín þegar Tómas Leifsson stakk af varnarmenn Blika í einni af mörgum skyndisóknum Fjölnis í leiknum en Ingvar Kale markamaður Blika kom útá móti og gerði vel með því að verja skotið frá Tómasi.

Tíu mínútum síðar fékk Kristinn Steindórsson gott tækifæri til að skora fyrsta mark leiksins þegar Finnur Orri átti góða stungusendingu inn fyrir fimm manna varnarlínu Fjölnis en missti boltann út fyrir endalínu þegar hann ætlaði að komast framhjá Hrafni í markinu og var það síðasta færi fyrri hálfleiks.

Strax í hálfleik ákváðu Fjölnismenn að gera breytingu á sínu liði en þá kom hinn ungi og efnilegi Kristinn Freyr Sigurðsson inná í stað Andra Vals Í varssonar og bætti hann sóknarleik Fjölnis talsvert, skilaði boltanum vel og átti þátt í flestum skyndisóknum Fjölnis.

Það voru þó Blikar sem áttu fyrsta færið í seinni hálfleik en á 50 mín átti Kristinn Jónsson gríðarlega gott skot rétt fyrir utan teig en boltinn fór rétt framhjá og staðan því ennþá 0-0.

Fjölnir sem pökkuðu í vörn í leiknum reyndu að beita skyndisóknum þegar þeir fengu boltann og á 57 mín voru þeir ekki langt frá því að skora. Gunnar Már leikmaður Fjölnis stormaði fram í langan og háan bolta frá vinstri bakverði Fjölnismanna og vann skallaeinvígi við varnarmann Blika og var einn á auðum sjó en ákvað að reyna langskot sem fór framhjá í stað þess að fara nær markinu.

Lítið gerðist restina af leiknum fyrir utan aukaspyrnu sem Arnór Sveinn tók við vítateigslínu gestanna og hamraði boltann beint á markið og þurfti Hrafn Davíðsson að taka á honum stóra sínum til að verja boltann yfir.

Niðurstaðan sanngjarnt jafntefli í Kópavogi í einum leiðinlegasta leik sem lengi hefur sést í efstu deild og var ljóst að Blikar söknuðu þess að hafa Alfreð Finnbogason, sem er meiddur, í fremstu víglínu hér í kvöld.

Byrjunarlið Blika: Ingvar Þór Kale, Finnur Orri Margeirsson, Kári Ársælsson, Kristinn Steindórsson, Arnar Grétarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Elfar Freyr Helgason, Arnar Sigurðsson, Guðmundur Kristjánsson, Kristinn Jónsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson.

Byrjunarlið Fjölnis: Gunnar Valur Gunnarsson, Gunnar Már Guðmundsson, Ólafur Páll Johnson, Magnús Ingi Einarsson, Jónas Grani Garðarsson, Ásgeir Aron Ásgeirsson, Tómas Leifsson, Hrafn Davíðsson, Illugi Þór Gunnarsson, Andri Valur Ívarsson, Vigfús Arnar Jósepsson.

Gul spjöld: Hermann Aðalgeirsson (Fjölnir), Vigfús Arnar Jósepsson (Fjölnir), Andri Valur Ívarsson (Fjölnir), Arnór S. Aðalsteinsson (Breiðablik)
Maður leiksins: Kristinn Freyr Sigurðsson (Fjölnir)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 605
Slapp
banner