Valur 0 - 5 FH
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('6)
0-2 Atli Viðar Björnsson ('14)
0-3 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson ('23)
0-4 Tryggvi Guðmundsson ('60)(Víti)
0-5 Davíð Þór Viðarsson ('90+2)
0-1 Tryggvi Guðmundsson ('6)
0-2 Atli Viðar Björnsson ('14)
0-3 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson ('23)
0-4 Tryggvi Guðmundsson ('60)(Víti)
0-5 Davíð Þór Viðarsson ('90+2)
Þjálfaralausir Valsarar biðu afhroð þegar þeir fengu Íslandsmeistara FH í heimsókn á Vodafonevöllinn í 10. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Arfaslök spilamennska liðsins varð til þess að þeir töpuðu niðurlægjandi 5-0 gegn spræku liði FH sem virðist vera á góðri leið með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á nýjan leik þegar nóg er enn eftir af mótinu.
Andleysið í liði Vals var algert og var mikið um misheppnaðar sendingar og tapaða bolta. Tap þeirra hefði getað verið enn stærra en það var þó ekki einungis Valsliðið sem var slakt, heldur var lið FH frábært í kvöld og verður ekkert af þeim tekið.
Það var ljóst í hvað stefndi strax í upphafi því að fyrsta mark leiksins kom þegar einungis sex mínútur voru liðnar af leiknum. Atli Viðar Björnsson vann þá boltann á hættulegum stað hjá vítateignum og renndi honum í gegnum klofið á varnarmanni Vals og til Tryggva Guðmundssonar sem kláraði færið af yfirvegun framhjá Haraldi Björnssyni í marki Vals. Skelfilegur varnarleikur hjá Val og var þetta einungis keimurinn af því sem koma skyldi.
Það liðu einungis átta mínútur þar til FH bætti við öðru marki sínu og er óhætt að segja að það hafi verið í glæsilegri kantinum. Atli Guðnason átti þá frábæran sprett upp vinstri kantinn sem endaði með góðri fyrirgjöf til Atla Viðars. Atli Viðar tók mjög vel á móti boltanum með kassanum og afgreiddi hann snyrtilega í netið og skoraði sitt sjötta mark í sex leikjum. Hann er nú markahæsti leikmaður liðsins með sjö mörk og næstmarkahæstur í deildinni ásamt Alfreði Finnbogasyni leikmanni Breiðabliks.
Valsararnir voru greinilega slegnir af laginu eftir þetta og gekk fátt upp hjá þeim. Sendingar þeirra voru slakar og þeir voru að tapa boltanum á hættulegum svæðum. Það kom því engum á óvart þegar sprækir gestirnir bættu við sínu þriðja marki en þar var á ferð Ásgeir Gunnar Ásgeirsson eftir góða fyrirgjöf frá Atla Guðnasyni. Ásgeir þurfti lítið annað að gera en að pota knettinum í netið sem og hann gerði.
Fyrsta skot Valsara kom á 26. mínútu eftir aukaspyrnu frá Ólafi Páli Snorrasyni en Daði Lárusson varði þessa ágætu spyrnu og hélt knettinum. Skotárás FH-inga hélt þó áfram og fengu þeir ágætis færi í tvígang til að bæta við mörkum.
Þeir voru líflegir það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins en án þess þó að bæta við mörkum en sigur þeirra virtist nokkurn veginn í höfn þegar gengið var til búningsklefanna.
FH-ingarnir byrjuðu seinni hálfleikinn sprækir en þeir voru þó augljóslega ekki jafn ákafir og í þeim fyrri. Samt sem áður voru þeir léttleikandi og fékk Atli Guðnason meðal annars fínt tækifæri eftir frábæra sókn þar sem mikið af einnar snertingar sendingum fóru fram.
Þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum var brotið á áðurnefndum Atla inni í teig en hann sjálfur bað ekki einu sinni um víti. Garðari Erni Hinrikssyni dómara fannst þó að um peysutog hefði verið að ræða og steig Tryggvi Guðmundsson á punktinn. Hann skoraði af öryggi úr sinni vítaspyrnu og sendi markvörðinn í öfugt horn. Þetta var annar deildarleikurinn gegn Val í röð þar sem Tryggvi skoraði tvö mörk fyrir FH, en það afrekaði hann einnig í seinasta leik liðanna í Kaplakrika sem lauk 3-0 fyrir FH.
Eftir fjórða markið virtist aðeins slakna á klónni hjá gestunum og komust Valsarar aðeins inn í leikinn. Baldur Ingimar Aðalsteinsson sem hafði komið inn á sem varamaður í hálfleik átti skot í þverslánna og Viktor Unnar Illugason kom með ferskleika inn í liðið þegar honum var skipt inn. Það dugði þó ekki til og var mjög lítið að gerast í leiknum á löngum kafla.
Á 78. mínútu kom Sverrir Garðarsson inn á fyrir Tommy Nielsen við mikinn fögnuð stuðningsmanna FH og var þetta í fyrsta skiptið síðan 2007 sem hann lékí treyju liðsins. Það er þó augljóst að það verður hægara sagt en gert fyrir hann að brjótast inn í vörn Íslandsmeistaranna sem hefur haldið hreinu í sjö leikjum í röð.
Það virtist allt stefna í góðan 4-0 sigur FH en þeir voru greinilega ekki alveg orðnir saddir því að í uppbótartíma kórónaði fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson niðurlægingu Vals með fimmta marki leiksins. Atli Viðar Björnsson gaf þá á hann góða sendingu inni í teig og var Davíð ekki í vandræðum með að klára færið.
Einungis andartökum síðar var flautað til leiksloka og voru lokatölur því 5-0 fyrir FH á Vodafonevellinum. Sláandi úrslit og er það augljóst að verðandi þjálfara Vals bíður erfitt verkefni. Spurning er hvort að hægt sé að stíla slaka frammistöðu Vals í kvöld á það að hafa misst þjálfarann Willum Þór Þórsson í gær en óháð því á liðið með alla sína gæðaleikmenn innanborðs að gera betur.
FH lítur þó mjög vel út á toppi deildarinnar með 30 stig, níu stigum á undan KR sem er í 2. sætinu. Fátt bendir til annars en að þeir hampi Íslandsmeistaratitlinum en þeir vita það þó sjálfir frá því í fyrra að allt getur gerst.
Byrjunarlið Vals: Haraldur Björnsson, Steinþór Gíslason, Guðmundur Viðar Mete (46. Baldur Ingimar Aðalsteinsson), Atli Sveinn Þórarinsson, Reynir Leósson, Ólafur Páll Snorrason (65. Viktor Unnar Illugason), Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson (84. Ian Jeffs), Einar Marteinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Marel Baldvinsson.
Byrjunarlið FH: Daði Lárusson, Guðmundur Sævarsson, Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen (78. Sverrir Garðarsson), Freyr Bjarnason, Davíð Þór Viðarsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (82. Hákon Atli Hallfreðsson), Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Tryggvi Guðmundsson (73. Matthías Guðmundsson).
Gul spjöld: Bjarni Ólafur Eiríksson (Val), Atli Sveinn Þórarinsson (Val).
Maður leiksins: Atli Viðar Björnsson, FH.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson.
Áhorfendur: 1226.

