Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. júlí 2009 23:55
Fótbolti.net
1.deild umfjöllun: Fjarðabyggð upp í fjórða sætið
Pjetur St Arason skrifar frá Eskifirði
Högni Helgason skoraði annað markið í kvöld.
Högni Helgason skoraði annað markið í kvöld.
Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Ferskir stuðningsmenn Fjarðabyggðar.
Ferskir stuðningsmenn Fjarðabyggðar.
Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Fjarðabyggð 2-0 Þór
1-0 Grétar Ómarsson
2-0 Högni Helgason

Eftir tilþrifalítinn fyrri hálfleik sem einkenndist af miklu þófi, þar sem boltinn gekk liða á milli án þes Þórss þó að leikmenn sýndu nokkur tilþrif. Þrisvar sinnum skapaðist hætta við mark heimamanna þar var á ferðinni Einar Sigþórsson í öll skiptin en skot hans hittu ekki á rammann tvisvar sinnum skaut hann yfir markið en undir lok leiksins átti Einar svo frekar hættulegan skalla að markinu en boltinn fór yfir. Til marks um leiðindin í fyrri hálfleik má nefna að engin hornspyrna var dæmd og aðeins einu sinni var flautað á rangstöðu.

Líkja má fyrri leiknum í kvöld við rokktónleika þar sem fengin er léleg og leiðinleg hljómsveit til þess að hita upp fyrir aðal númerið, og þvílík umskipti í hálfleik. Á 50. mínútu fengu Þórsarar hornspyrnu – ótrúlegt en satt, þetta var fyrsta hornspyrnan í leiknum. Boltinn berst út á kantinn og það kemur skot að marki Fjarðarbyggðar sem Ingi Steinn Freysteinsson bjargaði á línu, þremur mínútum síðar var Ingi Steinn aftur á ferðinni.

Þá vann hann boltann á vinstra megin á miðjum eigin vallarhelmingi og leikur upp völlin og gaf á Jóhann Ragnar Benediktsson, sem sendi stungusendingu inn fyrir vörn Þórsara þar sem Ingi Steinn kom en Atli Már Rúnarsson markmaður Þórsara varði skot hans en boltinn barst út í vítateiginn þar sem Grétar Ómarsson var mættur og átti viðstöðulaust skot beint í vinstra hornið. og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn.

Nokkrum mínútum síðar varð afdrifaríkt atvik þegar Jóhann Benediktsson átti skot í varnarmann Þórsara og dómarinn dæmdi eðlilega hornspyrnu en Atli Már markvörður Þórsara var ekki á sama máli og hundskammaði dómarann og sparkaði boltanum síðan upp í stúku og uppskar fyrir það ekkert annað en gult spjalt samkvæmt reglunum. Úr hornpyrnunni skoraði svo Högni Helgason annað mark Fjarðabyggðarliðsins með nokkuð laglegum skalla. Þetta var fjórða mark Högna í sumar.

þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik kom gamla markamaskínan Hreinn Hringsson inn á hjá Þórsurum og var hann nokkuð hættulegur en Srdjan Rajkovic markvörður Fjarðarbyggðar sá við honum.

Þrátt fyrir að mörkin hafi ekki verið fleiri í leiknum sáust oft skemmtileg tilþrif á báða bóga. Á tímabili var þó eins og hálfleikurinn væri að breytast í flautukonsert Þorvaldar Árnasonar dómara sem réði engan veginn við hraða leiksins eftir hálfleik, þá var engu líkara en hann væri að þreyta einlíkarapróf á dómaraflautu. Skrítnasta ákvörðunin þótti mörgum þegar hann gaf Hauki Ingvari Sigubergssyni gult spjald eftir að Atli Rúnar makvörður Þórsara hafði hrint Hauki og Haukur svarað fyrir sig með því að stugga við Atla.

Skólabókardæmi um atvik þar sem leikmaður á gulu spjaldi kemst upp með að brjóta af sér og dómaranum finnst brotið ekki verðskulda það að leikmaðanninum sé vísað af leikvelli – sem hann auðvitað á að gera, ef dómarar eru að veifa spjöldum sínum á annað borð verða þeir að sjálfsögðu að gæta fyllstu sanngirni. Þarna hefði hann átt að gefa þeim báðum spjald eða sleppa því alveg að fara í vasa sinn.
Slapp
banner
banner