Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. júlí 2009 23:56
Brynjar Birgisson
Ásmundur: Förum með gott stig heim
Ásmundur Arnarsson.
Ásmundur Arnarsson.
Mynd: Fótbolti.net-Vilbogi M Einarsson
„Heilt yfir var ég ánægður með þá, við höfum náttúrulega verið í basli í sumar og ekki náð að spila okkar leik.Mér fannst við sýna okkar rétta andlit í dag í fyrsta sinn þannig að ég er heilt yfir ánægður," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis um spilamennsku sinna manna við fréttaritara Fótbolti.net eftir leikinn við Breiðablik í kvöld sem endaði með markalausu jafntefli.

,,Ég er ánægður með framlagið, ég er ánægður með baráttuna og við áttum fína spilakafla og vantaði herslumuninn að reka endahnútinn á þetta, við förum með gott stig heim en hefðum viljað þau öll."

Nú spiluðu Fjölnir með fimma manna varnarlínu og spurði fréttaritari Fótbolti.net hann Ásmund hvort að þeir myndu halda því áfram eftir þennan leik.

„Það kemur bara í ljós, það gekk ágætlega upp hér á móti þessu uppspili Blikanna, svo skoðum við bara hvernig framhaldið verður.“

Slapp
banner
banner
banner