Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 03. júlí 2009 00:01
Matthías Freyr Matthíasson
Leifur Garðars: Er mjög ánægður með þennan leik
Leifur Garðarsson þjálfari Víkinga
Leifur Garðarsson þjálfari Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leifur Garðarsson þjálfari Víkinga var ánægður með vinnusemi sinna manna og leikinn í heild er Víkingar gerðu jafntefli við ÍA í kvöld.

„Ég er mjög ánægður með þennan leik. Þetta er framhald af leiknum á móti Haukum um daginn þar sem þeir unnu mjög vel þó að þeir nýttu ekki þann fjölda færa sem við fengum í þeim leik. Við héldum vinnusemini og dugnaðnum áfram og við spiluðum boltanum í kvöld oft listilega vel. Klárlega vildi ég fá meira útúr þessum leik stigalega séð en ég get ekki annað en verið stoltur af mínu liði að taka skrefið áfram að bæta vinnusemina og spilamennskuna og við höldum bara áfram á þessari braut" sagði Leifur glaður í bragði í kvöld við Fótbolti.net

„Þetta var bara hörku fótboltaleikur, þessi leikur hefði sómað sér vel í efstu deild. Það var geysilegur hraði og mikil vinnusemi í leikmönnum beggja liða og menn gáfu bara allt í þetta og þetta var bara flottur fótbolti " Sagði Leifur um baráttuna í leiknum.

Pétur Örn Svansson skoraði algjörlega frábært mark af c.a. 25 metra færi.

„Hann reyndar hefur aldrei notað vinstri fótinn áður en hann er núna búinn að uppgvöta að hann er með tvær lappir og það er bara jákvætt að hann sé farinn að nota vinstri löppina og hann á ekki eftir að pússa skónna eftir þetta"

„Við ætluðum okkur auðvitað að vera komnir með fleiri stig og þeim höfum við aðallega tapað á heimavelli og við erum bara að vinna í því að búa til nýtt lið og það hefur gengið hægar en við héldum kannski. En það er búin að vera mikill hugur í mínum mönnum í síðustu leikjum og það er bara það sem við tökum með okkur í næsta leik" sagði Leifur um stöðu Víkings í deildinni.

„Ég held að það yrði bara alltof dýrt fyrir Víking að klára félagaskiptin mín úr FH því að þar sem grasið er orðið grænt og slétt og fínt eins og hér í dag að þá gæti ég verið tilbúinn eftir nokkra daga í slaginn" sagði Leifur brosandi aðspurður um hvort að Víkingur ætlaði að bæta við sig mönnum þegar félagaskiptaglugginn opnast 15. júlí n.k.

Slapp
banner
banner