,,Það gekk ekkert upp í sóknarleiknum, sóknarleikurinn var hægur, fyrirsjáanlegur, ónákvæmur og dapur,“ sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðablik eftir markalaust jafntefli við Fjölni í kvöld og var allt annað en sáttur með sóknarleik sinnar manna.
,,Ég er að fara norður á N1 mótið, 5.flokkur er að spila. Ef þú kíkir á leikskýrsluna þá er ég kominn ansi djúpt inní 2.flokkinn með leikmenn og ég hef enga möguleika á að gera drastískar breytingar."
,,Fyrir leikinn í dag þá voru 15 leikmenn úr hópnum leikfærir og ég veit ekki hvar ég á að finna þá leikmenn. Það er alveg sama hvaða leikkerfi við hefðum spilað í dag, með svona litlu tempói í spilinu, svona mikið af feilsendingum og litlum vilja til að koma sér inní teiginn til að skora þá hefðum við getað spilað hvaða kerfi sem er og það hefði ekkert virkað,“ sagði Ólafur Kristjánsson þegar hann var spurður útí hvort að breytingar yrðu á liðinu eftir dapran leik sinna manna.





