Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 03. júlí 2009 00:24
Jóhann Óli Eiðsson
3 deild úrslit og markaskorarar: Mark af 70 metra færi
Arnar Freyr Óskarsson skoraði þrennu fyrir Árborg gegn Sindra
Arnar Freyr Óskarsson skoraði þrennu fyrir Árborg gegn Sindra
Mynd: Guðmundur Karl
Daníel Smári Magnússon (t.h.) skoraði stórglæsilegt mark í kvöld
Daníel Smári Magnússon (t.h.) skoraði stórglæsilegt mark í kvöld
Mynd: Hafþór Hreiðarsson
Þrír leikir fóru fram í 3. deild Íslandsmótsins í dag. Tveir þeirra unnust á heimavelli og einn endaði með jafntefli en sextán mörk voru skoruð í leikjunum þremur.

Á Selfossvelli sigraði Árborg gestina í Sinda mjög örugglega með fimm mörkum gegn engu en þar skoraði Arnar Freyr Óskarsson þrennu. Á Víkingsvelli skildu Berserkir og Hvíti Riddarinn jöfn en bæði lið skoruðu þrjú mörk. Hvíti riddarinn kom til baka þar eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Á Vopnafjarðarvelli, eða Frímerkinu svokallaða, mættust Einherji og Draupnir. Leikurinn endaði með sigri Einherja en þeir skoruðu fimm mörk gegn engu. Þar var stórglæsilegt mark skorað þegar Daníel Smári Magnússon lét vaða af sjötíu metra færi og inn fór boltinn! Klárlega mark kvöldsins.

Úrslit og markaskorara má sjá hér að neðan.

Berserkir 3 - 3 Hvíti riddarinn
0-1 Alexander Aron Brynjarsson (Víti)
1-1 Andri Tómas Gunnarsson
2-1 Einar Guðnason
3-1 Einar Guðnason
3-2 Sindri Már Kolbeinsson
3-3 Axel Lárusson

Árborg 5 - 0 Sindri
1-0 Arnar Freyr Óskarsson
2-0 Arnar Freyr Óskarsson
3-0 Theodór Guðmundsson
4-0 Arnar Freyr Óskarsson
5-0 Sigurður A. Þorvarðarson

Einherji 5 - 0 Draupnir
1-0 Davíð Örvar Ólafsson ('28)
2-0 Daníel Smári Magnússon ('34)
3-0 Marteinn Þór Vigfússon ('51)
4-0 Sigurður Donys Sigurðsson ('56)
5-0 Ragnar Antonsson ('91)

Smellið hér til að sjá stöðuna í A-riðli

Smellið hér til að sjá stöðuna í C-riðli

Smellið hér til að sjá stöðuna í D-riðli
Slapp
banner