ÍA 1 - Víkingur R. 1
1 - 0 Guðjón Heiðar Sveinsson ÍA ( 8 )
1 - 1 Pétur Örn Svansson Víkingur ( 73 )
1 - 0 Guðjón Heiðar Sveinsson ÍA ( 8 )
1 - 1 Pétur Örn Svansson Víkingur ( 73 )
ÍA tók á móti Víking R. í kvöld á Akranesi. Leikurinn markar upphaf Írskra Daga sem eru árlegur viðburður á Akranesi. Liðin hafa bæði valdið stuðningsmönnum sínum vonbrigðum í sumar en búist var við að þessi lið yrðu í toppbaráttunni og kandítadar um að fara upp í úrvalsdeildina. Skagamenn sátu fyrir leikinn í 7. sæti en Víkingar í 9. sæti.
Leikurinn byrjaði af krafti og pressuðu Víkingar mjög stíft og fengu þeir 4 eða 5 hornspyrnur á fyrstu mínútunum. Skagamenn bökkuðu mjög mikið til að byrja með og Víkingarnir gengu á lagið.
Það breyttist þó á 8 mínútu er Skagamenn fengu sókn og eftir töluvert klafs inní teig Víkinga tók Guðjón Heiðar Sveinsson skot sem fór í slánna og síðan í bakið á Magnúsi Þormar markmanni Víkinga og af honum í netið. Þetta var fyrsta sókn Skagamanna í leiknum.
Það var svosem fátt um fína drætti í fyrri hálfleik. Bæði lið fengu sín hálffærin og var mikil barátta og oft á tíðum góð spilamennska í leiknum. En að sama skapi ekkert sérstaklega spennandi.
Seinni hálfleikurinn byrjaði í raun eins og sá fyrri nema nú voru það Skagamenn sem fengu hornspyrnurnar. En þeir fengu einnig 4 - 5 hornspyrnur í byrjun seinni hálfleiksins.
Það var sama baráttan sem einkenndi leikinn í seinni hálfleik og engin stór færi sem litu dagsins ljós. Því kom það eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar hann Pétur Örn Svansson skaut með vinstri fæti af c.a. 25 metra færi og boltinn lá í markinu. Óverjandi fyrir hinn unga markmann Skagamanna Trausta Sigurbjörnsson.
Síðustu mínúturnar voru fjörlega og hefðu Skagamenn með réttu átt að skora tvö mörk. Í fyrra atvikinu kom Magnús Þormar í úthlaup langt útúr teig og reyndi að skalla boltann en hitti hann ekki nógu vel og hljóp til baka. Ólafur Valur tók skot langt utan af velli en Magnús náði á einhvern óskiljanlegan hátt að kasta sér í markið og blaka boltanum fram hjá.
Seinna færið fékk Gísli Freyr Brynjarsson, en hann fékk stungusendingu inn í teig og Magnús Þormar gerði vel og varði boltann í horn.
Niðurstaðan því 1 - 1 jafntefli og bæði lið halda áfram að vera í miðju/fallbaráttu í deildinni.
Lið ÍA: Trausti Sigurbjörnsson, Guðjón Heiðar Sveinsson, Árni Thor Guðmundsson, Heimir Einarsson, Helgi Pétur Magnússon, Andri Júlíusson, Ragnar Leósson, Guðmundur Böðvar Guðmundsson, Hlynur Hauksson, Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, Sölvi G. Gylfasson
Varamenn: Ísleifur Örn Guðmundsson, Gísli Freyr Brynjarsson, Halldór Jón Sigurðsson, Árni Snær Ólafsson, Ólafur Valur Valdimarsson.
Lið Víkings: Magnús Þormar, Knútur Rúnar Jónsson, Jökull I. Elísarbetarson, Egill Atlasson, Jakop Spangsberg Jensen, Christopher Steven Vorenkamp, Walter Hjaltested, Sigurður Egill Lárusson, Daníel Hjaltasson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson
Varamenn: Tómas Guðmundsson, Grétar Ali Khan, Pétur Örn Svansson, Marteinn Briem, Halldór Smári Sigurðsson




