Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 23. júlí 2009 10:30
Magnús Már Einarsson
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson í Val (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson hefur gengið í raðir Vals en þar hittir hann fyrir bróðir sinn Arnar sem gekk til liðs við félagið fyrir helgi.

Bjarki er kominn með leikheimild með Val og er því löglegur með liðinu gegn Fjölni í Pepsi-deildinni í kvöld.

Arnar og Bjarki voru spilandi þjálfarar hjá ÍA fyrri hluta sumar en samstarfi þeirra við félagið var slitið í síðustu viku.

Í kjölfarið samdi Arnar við Val en Bjarki ákvað að bíða aðeins með að semja meðan að hann lét reyna á meiðsli sem hafa verið að hrjá hann.

Í sumar hefur Bjarki leikið átta leiki með ÍA í fyrstu deildinni en í fyrra lék hann tíu leiki í efstu deild með FH og ÍA.
Slapp
banner