Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 28. júlí 2009 23:12
Sigmann Þórðarson
Umfjöllun 1. deild: ÍR-ingar stóðu af sér stórsókn Þórsara
Árni Freyr Guðnason og Hreinn Hringsson í leiknum í kvöld.
Árni Freyr Guðnason og Hreinn Hringsson í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Atli Sigurjónsson með boltann.
Atli Sigurjónsson með boltann.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
ÍR 1 - 0 Þór
1-0 Árni Freyr Guðnason ('9)

Spennan var áþreifanleg þegar ÍR-ingar tóku á móti Þórsurum í mjóddinni í kvöld í 14. umferð 1. deildarinnar. Heimamenn náðu forustu snemma leiks og það er óhætt að segja að þeir hafi þurft að hafa fyrir því að halda því forskoti því gestirnir að norðan lágu á þeim það sem eftir lifði leiks. Það lýsir kannski lánleysi Þórsara best að þeir áttu skalla í slánna þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma en boltinn vildi ómögulega inni í markið í kvöld.

Heimamenn náðu að standa af sér ásóknina og lönduðu því mikilvægum stigum í þessari óhemju jöfnu deild en ekki nema tíu stig skilja á milli 2. og 11. sætis og því stutt í mikla baráttu á báða enda. Þórsarar þurfa hins vegar að finna hjá sér stöðugleika en þess má geta að liðið hefur ekki gert neitt jafntefli í sumar.

Það voru gestirnir sem fengu fyrsta færi leiksins en þá fengu þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig ÍR-inga. Þorsteinn Einarsson, sem var án nokkurs vafa maður þessa leiks, varði spyrnuna vel en hann átti eftir að vera mikið í boltanum það sem eftir lifði leiks.

Það var svo á níundu mínútu að heimamenn komust yfir. Sindri Snær Magnússon átti þá fína sendingu á Eyþór Guðnason úti á vinstri kantinum. Eyþór sendi svo háan bolta fyrir markið þar sem Árni Freyr Guðnason náði að komast til boltans og skallaði hann í netið. Vel útfærð sókn sem gaf góð fyrirheit fyrir framhaldið.

Mikil barátta einkenndi næstu mínútur en eftir um hálftíma leik lifnaði algjörlega yfir leiknum. Gestirnir riðu á vaðið og voru ekki langt frá því að jafna leikinn þegar Hreinn Hringsson fékk góða sendingu inn í teig en Hreinn hitti boltann illa og færið fór forgörðum. Stuttu seinna snérist dæmið við og þá sendi Hreinn sendingu fyrir markið en Ármann Pétur Ævarsson þurfti að teygja sig í boltann og náði ekki að stýra honum á markið úr úrvals færi.

Heimamenn svöruðu með tveimur færum. Þau átti markaskorarinn Árni Freyr en hann var klaufi að auka ekki við forystuna eftir að Guðfinnur Þórir Ómarsson lagði boltann á hann eftir að þeir félagar höfðu sloppið inn fyrir eftir varnarmistök Þórsara. Björn Hákon Sveinsson varði hins vegar vel frá honum og svo aftur stuttu síðar þegar Árni Freyr átti skot rétt fyrir utan teig.

Þær mínútur sem eftir lifðu hálfleiksins voru hins vegar eign gestanna. Þeir fengu aðra aukaspyrnu rétt fyrir utan teig þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Matthías Örn Friðriksson tók aukaspyrnuna og skaut föstu skoti á fjærstöngina. Þorsteinn varði en náði ekki að halda boltanum sem barst óvænt til Hreins Hringssonar sem náði þó ekki nægilega góðu skoti að marki til að sigrast á Þorsteini í markinu.

Stuttu seinna átti Matthías Örn annað skot að marki eftir að hafa farið framhjá varnamönnum ÍR-inga. Þorsteinn varði það skot og svo aftur stuttu seinna frá Einari Sigþórssyni eftir góða sókn gestanna. Þorsteinn sá því til þess að ÍR-ingar héldu forystunni í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn byrjaði af mikilli baráttu en færin létu þó bíða eftir sér. Það var svo eftir klukkutíma leik að Einar Sigþórsson fékk tvö úrvalsfæri til að koma Þórsurum inn í leikinn. Það fyrra kom eftir varnamistök ÍR-inga en þá vann hann boltann og sótti í átt að markinu. Þorsteinn varði vel með góðu úthlaupi. Stuttu seinna fékk Einar svo fína sendingu frá Mattíasi Erni fyrir markið en hann náði ekki að stýra boltanum á markið og skaut honum yfir.

Þórsarar lágu á heimamönnum eftir þetta en ÍR-ingar náðu þó tvisvar að nýta sér það að gestirnir voru fáliðaðir aftar á vellinum eftir mikla pressu. Þegar tuttugu mínútur lifðu leiks fékk Haukur Ólafsson sendingu inn fyrir frá Árna Frey en Björn Hákon varði vel í markinu. Elías Ingi Árnason, sem er nýkominn aftur til ÍR-inga, fékk svo ágætis færi á að gulltryggja sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. Honum skrikaði hins vegar fótur í blautu grasinu í móttökunni og því fór færið forgörðum.

Þórsarar, sem voru orðnir ansi óþreyjufullir, fengu svo hornspyrnu eftir venjulegan leiktíma sem endaði með því að Atli Jens Albertsson náði skalla að marki en til að kóróna lánleysi þeirra þá endaði boltinn í slánni. Leikurinn kláraðist stuttu seinna og náðu ÍR-ingar sér því í mikilvæg stig og eru nú komnir í sjöunda sæti stigi á undan Þórsurum sem sitja í því áttunda.
Slapp
banner