Heimild: Strill.it
Vefmiðillinn Strill.it sem er nátengdur ítalska liðinu Reggina greinir frá því dag að Emil Hallfreðsson hafi hafnað að ganga til liðs við Barnsley á láni og vilji nú frekar vera um kyrrt á Ítalíu.
Barnsley og Reggina komust að samkomulagi um lánsskipti Emils á fimmtudaginn og var búist við því að leikmaðurinn myndi skrifa undir eftir landsleik Íslands og Slóvakíu næstkomandi miðvikudag.
Heimildir Fótbolti.net herma að ítalska úrvalsdeildarliðið Chievo hafi sett sig í samband við forráðamenn Reggina í síðustu viku í þeim tilgangi að semja um kaup á Emil.
Fótbolti.net mun fylgjast náið með framvindu þessa máls en samkvæmt okkar heimildum er Emil á leiðinni til Barnsley og mun skrifa undir í þessari viku.
Athugasemdir