Þremur leikjum var að ljúka í 1. deild karla þar sem HK vann Aftureldingu þrátt fyrir að vera manni færri hálfan leikinn en á sama tíma náðu Haukar jafntefli gegn Víkingum á heimavelli sínum og halda þar með 2. sætinu á markatölu sem er betri en HK en aðeins eitt mark skilur liðin að í 2. og 3. sæti.
Á Akranesi fóru Skagamenn langt með að tryggja áframhaldandi veru sína í deildinni með 1-0 sigri á ÍR á sama tíma og Afturelding tapaði fyrir HK.
Frekari umfjöllun um leikina, myndir og viðtöl, koma hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
ÍA 1-0 ÍR
1-0 Andri Júlíusson (’14)
Afturelding 1-3 HK
0-1 Stefán Jóhann Eggertsson
1-1 Albert Ásvaldsson
1-2 Þórður Birgisson
1-3 Þórður Birgisson
Rautt spjald: Hafsteinn Briem, HK (’45)
Haukar 2-2 Víkingur
0-1 Kristinn Jóhannes Magnússon (‘7)
0-2 Jakob Spangsberg (’59)
1-2 Hilmar Rafn Emilsson (’64)
2-2 Garðar Ingvar Geirsson ('86)
Rautt spjald: Ásgeir Þór Ingólfsson ('84)
Athugasemdir