Eiður Smári Guðjohnsen var í gær tilkynntur sem leikmaður Monaco sem leikur í frönsku deildinni. Hér að neðan má sjá það sem hann hafði að segja við það tilefni og þar fyrir neðan myndband af því viðtali sem fer fram á ensku.
,,Já, númer níu, ég finn þegar smá pressu en ég tel að leikmenn ættu að standa sig betur undir pressu svo ég vonast til að geta gert þessa treyju stolta. "
,,Þetta er mikill heiður, og nýtt skref á ferli mínum. Ég er mjög spenntur að vera kominn hingað, þetta er treyja með mjög þekktum litum og ég vonast til að færa félaginu mikinn árangur."
,Fyrst og fremst vil ég vinna virðingu nýrra liðsfélaga minna og þegar ég stíg inn á völlinn reyni ég auðvitað að setja boltann í netið."
,,Það er mikilvægt, ég er þannig, karakterinn minn. Ég hef verið mjög heppinn á ferlinum að spila með mörgum frábærum leikmönnum hjá stórum félögum og finnst að ég hafi skrifað undir hjá öðru stóru félagi. Ég vonast til að koma Monaco þar sem þeir eiga heima, hærra á töflunni. Ég er mjög spenntur."
,,Ég hef þegar minningar af því að horfa á Monaco í sjónvarpinu og það hafa margir frábærir leikmenn spilað í þessari treyju. Ég vonast til að skapa söguna hérna líka."
,,Ég er mjög rólegur, ég á þrjú börn, þrjá stráka sem eru brjálaðir í fótbolta og hafa þegar beðið mig um treyju. Þeir eru miklir stuðningsmenn Barcelona og núna eru þeir spenntir fyrir því að verða Monaco stuðningsmenn. Ég er mikill fjölskyldumaður."
,,Ég hef engin sérstök skilaboð, það er erfitt að lofa einhverjum fjölda af mörkum. En ég lofa að leggja mig allan fram og mun klæðast treyjunni með miklu stolti. Ég er viss um að þegar ég yfirgef Monaco mun fólkið muna eftir mér."
,,Það er skrítið að koma hingað í einn dag og klára samninginn og byrja að æfa ekki einu sinni með nýja liðinu. Það er alltaf heiður að spila fyrir þjóð mína en ég hlakka til að koma aftur og spila fyrir liðið mitt með nýjum liðsfélögum og læra tungumálið og allt hérna."




