,,Úrvalsdeildin er mikið sterkari en 1. deild og Haukar eru komnir upp til að vera þar en fara ekki beint niður.''
Haukar tryggðu sér í gær sæti í Pepsi-deild kvenna með 1-0 sigri á Völsungi í umspili 1. deildar. Fyrri leiknum hafði lokið með 4-1 sigri Hauka sem unnu því 5-1 samanlagt. Salih Heimir Porca þjálfari liðsins segir alltaf hafa verið stefnt að því að fara upp og þess vegna hafi hann komið til félagsins.
Markvörðurinn meiddist
,,Frá upphafi vorum við mikið massívara og sterkara lið svo þetta voru sanngjörn úrsilt. Við vorum að halda boltanum allan leikinn og spila vel. Það var engin hætta," sagði Salih Heimir við Fótbolta.net í gær.
,,Tinna Mark skoraði glæsilegt mark. Bæði lið fengu nokkur færi og í seinni hálfleik urðum við að gera skiptingu þegar markmaðurinn okkar meiddist og fór af velli. Við settum stelpu úr 2. flokki í markið en hún hafði spilað báða leikina gegn Selfossi og heitir Þórdís Pálsdóttir."
,,Völsungur er með gott lið en það vantar kannski meiri breidd hjá þeim. Þetta eru góðir leikmenn en fáir. Við fögnuðum hér og það er glæsilegt að fara aftur upp, svo er dolla eftir sem við reynum að taka líka."
Fótboltinn er skrítinn
Eftir að fyrri leik liðanna hafði lokið með 4-1 sigri Hauka má segja að um formsatriði hafi verið að ræða fyrir félagið að klára síðari leikinn. Porca er ekki sammála því og sagði viðureignina ekki hafa klárast í fyrri leiknum.
,,Nei, fótboltinn er svo skrítinn. Það þarf að fara út á land og keyra allan daginn. Við lögðum af stað klukkan 09:00 í morgun og menn geta verið þreyttir, og svo getur spilað inn í heppni og óheppni í þessu ef maður fær á sig eitt mark og svo annað," sagði hann.
,,Það gæti kveikt í hinu liðinu og skapið hjá manni fer ekki upp heldur niður. Það getur margt gerst en sem betur fer erum við mjög sterkt og massívt lið sem var á öllum sviðum bara sterkari "
Bað um ákveðna leikmenn og það kostaði
Þegar Salih Heimir Porca kom til Hauka síðasta haust var hann strax með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að búa til gríðarlega sterkt lið og leikmennirnir streymdu til félagsins. Hann segir metnað félagsins mikinn.
,,Ég kom bara hingað með því hugarfari að fara upp. Ég hafði aðra möguleika en þeir vildu fá mig til að fara upp," sagði hann við Fótbolta.net í gærkvöld.
,,Ég vil þakka stjórn félagsins, þeir hafa staðið þétt við bakið á mér og gerðu allt sem ég þurfti þegar við vorum að byrja. Því styrktum við okkur með erlendum og innlendum leikmönnum. Ég bað um ákveðna leikmenn og það kostaði en ég hafði mikinn metnað í þessari kreppu. Þeir vildu fara upp."
,,2. flokkurinn hjá okkur er kominn í úrslit bikarsins og er á toppnum í sinni deild. Markmiðið var að koma bæði meistaraflokk og 2. flokk upp um deild og það er að verða að veruleika. Þetta er rosalega stór hópur foreldra og stjórnarmanna sem standa að baki þessu og það er bara mjög gaman."
Ekki eins og Keflavík
Salih Heimir hafði verið þjálfari Keflavíkur á síðustu leiktíð en hætti á miðju tímabili. Eftir tímabilið missti Keflavík alla sína leikmenn en hann segir allt öðruvísi staðið að málum hjá Haukum aðspurður um hvort hann muni styrkja liðið.
,Við þurfum að setjast og skoða möguleikana og mér heyrist stjórnarmennirnir hér vera þegar farnir að hugsa málin strax," sagði hann.
,,Haukar ætla ekkert að verða eins og Keflavík. Heldur ætla þeir að setjast niður og sjá hvernig gengur að styrkja fyrir næsta ár. Úrvalsdeildin er mikið sterkari en 1. deild og Haukar eru komnir upp til að vera þar en fara ekki beint niður."
Lokaleikur Hauka í sumar verður svo úrslitaleikur gegn erkiféndunum í FH á sunnudaginn. Við spurðum hann að lokum út í þann leik.
,,Það er bara skemmtilegt, það er gaman að hitta Jón Þór vin minn hjá FH, sem er skemmtilegur þjálfari. Ég vil óska honum til hamingju, með þennan mannskap er frábær árangur að fara upp. Hann er greinilega búinn að vinna mikið og gott verk hjá FH."

