banner
   fös 04. september 2009 16:19
Magnús Már Einarsson
Heimild: Blikar.is 
Kári Ársælsson gerir nýjan samning við Breiðablik
Kári fagnar marki ásamt félögum sínum.
Kári fagnar marki ásamt félögum sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kári Ársælsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur gert nýjan samning við félagið sem gildir út árið 2011.

,,Þetta eru góð tíðindi enda hefur Kári verið lykilmaður í góðu gengi liðsins að undanförnu," segir á Blikar.is.

,,Blikar.is fagna þessari ákvörðun fyrirliðans og vonast auðvitað eftir því að aðrir leikmenn liðsins sem eru með lausan samning fylgi þessu góða fordæmi fyrirliðans."

Kári kom aftur til Blika fyrir tímabilið eftir að hafa verið í láni hjá Stjörnunni í fyrra.

Þessi 24 ára gamli varnarmaður hefur skorað tvö mörk í átján leikjum með Blikum í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði í 3-1 sigri gegn Stjörnunni síðastliðið mánudagskvöld.
Slapp