Grótta komst upp í 1. deild í fyrsta skipti í sögu félagsins þegar liðið lagði Víði Garði 4-0 í næstsíðustu umferðinni í 2.deild karla á laugardag.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net var með mann á vellinum og fylgdi liðinu upp um deild ásamt því að heyra í Ásmundi Haraldssyni þjálfara liðsins aðeins nokkrum sekúndum eftir að flautað var af.
Hér að neðan má hlusta á upptöku af fögnuðinum í lok leiksins og viðtalinu við Ásmund.
Hægt er að hlusta á allan útvarpsþáttinn á laugardag með því að smella hér


