lau 24. október 2009 11:22
Þórður Már Sigfússon
Villarreal með augastað á Ragnari
Ragnar Sigurðsson í leik með IFK Gautaborg
Ragnar Sigurðsson í leik með IFK Gautaborg
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Útsendarar frá spænska stórliðinu Villarreal voru meðal áhorfenda á leik IFK Gautaborgar og Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi í þeim tilgangi að fylgjast með landsliðsmiðverðinum Ragnari Sigurðssyni.

Ragnar hefur spilað frábærlega með Gautaborgarliðinu á keppnistímabilinu og átti enn einn stórleikinn í gærkvöldi. Fjöldi útsendara voru á leiknum frá liðum í Englandi, Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi og var Ragnar undir smásjá margra þeirra.

Samkvæmt heimildum Fótbolti.net í Svíþjóð hafa útsendarar Villarreal fylgst náið með Ragnari að undanförnu og hrifist mjög af frammistöðu hans.

Spænsk félög virðast vera nokkuð hrifin af Ragnari því Espanyol gerði tilboð í leikmanninn í fyrra sem var hafnað af forráðamönnum IFK Gautaborgar.

Búast má við því Ragnar yfirgefi herbúðir IFK Gautaborg að loknu tímabilinu en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið á síðustu tveimur árum.

Villarreal hefur byrjað keppnistímabilið afleitlega og situr í neðsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, án sigurs, eftir sjö umferðir.
Slapp
banner
banner