Jón Páll Pálmason tekur við Hetti (Staðfest)
Jón Páll Pálmason hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildar liðs Hattar og skrifaði undir samning við félagið á Aroma í Hafnarfirði rétt í þessu. Hann samdi við félagið til eins árs.
Jón Páll sem er 27 ára gamall hefur þjálfað alla yngri flokka FH undanfarin ár en hann hóf þjálfaraferil sinn haustið 2003.
Á þeim tíma hefur hann orðið Íslandsmeistari sex sinnum með 4. 5. og 6. flokki auk þess þess að hafa unnið Shell mótið í Vestmannaeyjum og N1 mótið á Akureyri.
Hann tekur við starfinu af Njáli Eiðssyni sem þjálfaði liðið undanfarin ár en hætti með liðið nú í haust af fjölskylduástæðum þar sem hann er fluttur á Höfuðborgarsvæðið.
,,Eftir að hafa skoðað ferilskrá hans sáum við að hann hefur náð frábærum árangri með yngri flokka FH og að hann væri góður kostur. Eftir nokkur símtöl náðum við saman. Við gerum miklar væntingar til hans, þetta er metnaðarfullur þjálfari, metnaðarfull stjórn og metnaðarmikið félag," sagði Víglundur Páll Einarsson framkvæmdastjóri rekstrarfélags Hattar eftir undirskriftina í dag.
Víglundur mun verða aðstoðarþjálfari og þjálfar þann hluta liðsins sem er búsettur á Egilsstöðum í vetur og Jón Páll kemur svo í apríl.
Rætt er við Jón Pál hér á Fótbolta.net síðar í dag.