mið 28.okt 2009 15:53 Hafliði Breiðfjörð,
Jón Páll: Hann vonast til að ég tapi fyrstu fimm og verði rekinn
Jón Páll eftir undirskriftina í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Páll Pálmason var í dag ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Hattar. Hann er 27 ára gamall er að taka við meistaraflokki í fyrsta sinn, eftir að hafa þjálfað í yngri flokkum FH undanfarin ár. Við ræddum við Jón Pál eftir undirskriftina.

Hvernig kom það til að þú tækir við Hetti?
Þetta byrjaði fyrst þannig að það var ungur strákur sem ég er að þjálfa sem spurði mig hvort ég hefði ekki áhuga á að þjálfa meistaraflokk. Hann vissi að ég hafði búið á Egilsstöðum þegar ég var krakki og sagði að Höttur á Egilsstöðum væri án þjálfara. Ég hafði samband vð Árna Óla á Egilsstöðum og spurði hvort það væri búið að ráða þjálfara. Hann sagði nei og bað mig að senda sér þjálfaraferilinn minn. Svo fór þetta að rúlla eftir það.

Þú treystir þér alveg í svona stórt verkefni miðað við hverju þú hefur verið í áður?
Já, ég er búinn að þjálfa yngri flokka í FH í sex ár og vantaði nýja áskorun. Ég ákvað því að prófa að taka þetta stökk. Þetta er allt öðruvísi en að þjálfa yngri flokka en einhversstaðar verða menn að byrja og ég myndi aldrei taka þetta starf nema hafa fulla trú á að geta sinnt því mjög vel.

Hefurðu verið að þjálfa lengi í 11 manna bolta?
Já, ég hef þjálfað í 11 manna bolta í fimm ár, fjórða og þriðja flokk.

Þekkirðu Hattar liðið vel?
Ég þekki liðið í raun ekki neitt. Ég er búinn að skoða leikmannalistann og þekki þar tvo leikmenn, og það er vegna þess að þeir eru með eftirnöfn, Sigurður Donys og Jóhann Clausen, það er svo auðvelt ða muna það. Annars þekki ég liðið ekki neitt en ég fer austur eftir rúma viku og hitti þar leikmennina sem búa þar. Ég fer núna í að skoða þessi mál að fullu, kynnast leikmönnum, og ræða við þá. Svo hef ég æfingar strax.

Hvernig verður þessu háttað?
Þeir leikmenn sem búa á höfuðborgarsvæðinu munu æfa hjá mér í vetur. Ég get ekki farið austur núna um helgina því ég er á 7. flokksmóti í Reykjaneshöll en ég fer svo eftir hana og verð þar í viku. Svo fer ég austur í desember og verð þar í tíu daga, og einnig eitthvað í janúar og febrúar. Svo flyt ég austur 20. apríl.

Hvaða tengingu hefurðu við Egilsstaða, áttu ættingja þar?
Nei, ég á enga ættingja þar. Þetta var þannig að mamma var að vinna á spítalanum þar á sumrin og ég fór með. Ég þekki engan á Egilsstöðum.

Þetta verður því allt mjög nýtt fyrir þér?
Já, þetta verður heljarinnar verkefni. Mikið ævintýri og mikil vinna.

Hver verður aðstoðarþjálfari.
Það verður Víglundur.

Hefurðu kynnt þér aðstæðurnar hjá Hetti?
Það er góð aðstaða á Egilsstöðum. Það er upphitaður gervigrasvöllur með flóðljósum og flottan keppnisvöll sem er nefndur eftir goðsögn í íslensku íþrótttalífi, Vilhjálmi Einarssyni. Það er því alveg ljóst að Höttur á Egilsstöðum þarf ekki að vera að væla í félögum í grenndinni til að fá að spila heimaleiki sína eins og sum félög í efstu deild karla.

Hvernig er með leikmannamál, býstu við að styrkja liðið?
Eins og ég segi þá þekki ég ekki leikmannahópinn en verkefnið er að sjálfsögðu að kynnast leikmönnunum og sjá hvar þeir standa og hvar er hægt að styrkja sig. Við reynum örugglega eitthvað en það verður ekkert fyrr en eftir áramót og þegar það er farið að líða nær mótinu. Ég ætla að gefa mér tíma til að kynnast leikmönnunum, ég veit að þeir eru ungir og uppaldir og við komum fyrst og fremst til með að byggja á þeim.

Þú hefur þá enga ákveðna leikmenn í huga núna sem þú tækir með þér?
Nei, ég get ekki sagt það. Ég þekki ekki nógu vel styrkleikann á 2. deildinni. Ég verð að fá að sjá hann og vita hvaða leikmenn eru góðir til þess að spila þarna. Það er samt alveg eins hjá Hetti og öllum öðrum liðum, þeir leikmenn sem eru nógu góðir eru velkomnir.

Nú ertu að hefja þjálfaraferilinn í meistaraflokki. Hefurðu marga til að leita til með ráðgjöf í þjálfuninni?
Ég er svo heppinn með það að hafa þjálfað með mörgum góðum mönnum. Síðustu daga þegar ég hef verið í viðræðum við Hött hef ég mikið talað við Guðlaug Baldursson þjálfara ÍR og Jón Þór Brandsson þjálfara kvennaliðs FH. Svo eru margir góðir menn í FH sem ég veit að ég get hringt í og spjallað um fótbolta. Heimir Guðjónsson, Ingvar Jónsson þjálfari 2. flokks og Orri Þórðarson. Þeir geta gefið mér góð ráð og ég er alveg viss um að þeir svara mér hreinskilningslega þegar ég spyr þá um eitthvað.

Hvernig finnst þér að vera að taka við af goðsögn eins og Njáli Eiðssyni?
Mér finnst það ansi skemmtilegt. Ég hef vitað hver Njáll Eiðsson er síðan ég byrjaði að fylgjast með fótbolta sex ára gamall. Hann er búinn að þjálfa lið eins og ÍBV, Val, FH og Hött og svona. Ég er í raun og veru að taka við starfinu af göðsögn í íslenskri þjálfarasögu og það er frábært að byrja þarna fyrir austan. Það hafa margir góðir menn byrjað að þjálfa fyrir austan, eins og Óli Jóh, og Davíð Ólafsson vinur minn. Jón Þór Brandsson var líka að þjálfa Hött. Núna eru þeir að fá ungan mann sem er að taka við sínu fyrsta starfi í meistaraflokki fyrir mann sem hefur þjálfað í allavega 20 ár.

Þú ert helmingi yngri en Njáll en þegar hann var fyrir austan tók hann fram skóna og spilaði. Má ekki búast við því sama af þér?
Nei, það kemur ekki til greina að ég spili fótbolta fyrir austan. Ég ætla að þjálfa.

Ég var búinn að heyra af því að þó þú sést bara að skrifa undir í dag sé þegar búið að spá fyrir endalokunum hjá þér?
Það var þannig að á sunnudagsmorgun tilkynnti ég leikmönnum í 3. og 6. flokki að ég sé að fara að taka við meistaraflokksþjálfun á Egilsstöðum og myndi fara 20. apríl. Það var einn tíu ára í liðinu sem virkaði ekkert sérstaklega ánægður með þetta og hann sagði við mig að hann vonaðist til þess að ég myndi tapa fyrstu fimm leikjunum og verða rekinn. Þá gæti ég farið með honum á pollamótið á Akureyri.

Ætlarðu að afsanna það?
Já, það er alveg á hreinu að markmiðin eru allt önnur en að vera í þessu ströggli. Ég er ekki vanur að þjálfa fótbolta og vera í fallbaráttu. Ég á eftir að hitta leikmennina og stjórnina en liðið hefur verið að festa sig í sessi í 2. deildinni og mín markmið eru að vera í toppbaráttu og fara upp.

Þar sem þú ert hjá FH í dag og ert að fara í Hött er líklega draumur að fá að fara í Kaplakrikann með Hött í bikarnum?
Já, það hlýtur að vera skrifað í skýin. Að FH-ingar nái ekki að vinna bikarkeppnina enn eitt árið.
Nýjustu fréttirnar