Heimild: BBC
Íþróttadómstóll Evrópu hefur samþykkt beiðni Chelsea um að fresta félagaskiptabanni sem Fifa setti á félagið þar til að lokaniðurstaða liggur fyrir.
Chelesa var dæmt í félagaskiptabann í september síðastliðnum og átti það að gilda til ársins 2011.
Félagið getur hins vegar núna keypt leikmenn í janúar eftir að íþróttadómstóllinn frestaði banninu.
Chelsea var dæmt í bann eftir að félagið fékk unglinginn Gael Kakuta til að rifta samningi sínum við Lens og ganga til liðs við sig.
Athugasemdir