Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. nóvember 2009 18:38
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: YouTube 
Myndband: Torres á sjúkralista Liverpool ásamt 10 öðrum konum
Meiðslafréttir af Liverpool hafa orðið til þess að tveir ungir menn sem heita Kári Örn og Halldór og við vitum ekki frekari deili á hafa sent út lag á YouTube þar sem sungið er um vandræðin hjá félaginu. Sungið er við lagið Gestalistann eftir Ingó og Veðurguðina. Hér að neðan er myndband af laginu og þar fyrir neðan textinn fyrir áhugasama en þetta er tekið af vef YouTube.



Söngur: Kári Örn og Halldór
Texti: Halldór H.G.

Við erum að spila í kvöld, á heimavelli
Á Anfield verður fjögurra metra sjúkralisti
Þar spila kannski menn, sem enginn kannast við
En Rafa setur sína skástu menn á tréverkið

En Kyrgiakos verður þar og kannski líka Insua
Aquilani kíkir við en hann fær ekki að stíga á svið
Gyðingurinn fer á vænginn, en sólar aldrei andstæðinginn
Og Stevie G hann spilar ekki og nánast enginn sem ég þekki
Nema Babel fer á bekkinn, svo feiti þjónninn sleppi við skrekkinn..

Við erum að spila í kvöld, á útivelli
Á Stade de Gerland þar verður sjúkralisti
Þar spila kannski menn, sem enginn kannast við
En Rafa setur sína skástu menn á tréverkið

Og eflaust spilar Aggerinn, á þessu ári í fyrsta sinn.
Mascherano og Carragher, hann aldrei rekinn útaf er
Á miðjunni þar verður Lucas, með sitt ógeðslega fas
Ef einhver skorar sem ég þekki, þá fagnar Benitez samt ekki
Og ef við töpum þá verð ég sár, ég hélt þetta yrði okkar ár..

Þetta er sjúkralistinn
Þetta er sjúkralistinn
Þetta er sjúkralistinn!
Þetta er sjúkra..

Og ætli Torres sé á honum, já ásamt tíu öðrum konum?
Martin Skrtel og Riera, þeir hafa ekki sjitt að gera
Í stúkunni ég Gerrard finn.. ætli hann verði handtekinn?
Rafa er betri en ekki neinn, en ég held ég gangi einn

Ég vona bara að Voronin mæti
en þá verða líka læti..
og við lendum í öðru sæti..
Athugasemdir
banner
banner