Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari er genginn í lið með Fótbolta.net og ætlar að svara fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag fyrstu fyrirspurninni sem fjallar um hamstrings meiðsli sem eru mjög algeng meðal fótboltamanna.
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Aftanlærisvöðvarnir (Hamstrings) eru í raun 3 mismunandi vöðvar, m.biceps femoris, m.semitendinosus og m.semimembranousus og kallast þeir allir saman einu nafni, Hamstrings. Vöðvarnir hafa virkni bæði yfir mjaðmarliði og hnéliði og aðal hlutverk þeirra er að rétta úr mjaðmalið(extension) og beyja um hnélið (flexion).
Hamstringstognanir eru algengar í íþróttum og gerist aðallega við að vöðvarnir yfirteygjast, þ.e. að vöðvarnir eru teygðir það langt að rof kemur í vöðvaþræðina (tognun). Tognun í Hamstrings skiptist yfirleitt í 3 gráður:
Fyrstu gráðu tognun: Skemmdir á nokkrum vöðvaþráðum. Merki um tognun kemur oft ekki fram fyrr en eftir álag og getur þá komið fram sem krampi eða stífleiki í Hamstrings og jafnvel verkur þegar vöðvinn er teygður eða spenntur.
Annarrar gráðu tognun: Skemmdir á mörgum vöðvaþráðum. Verkur kemur strax í vöðvann og eru einkenni töluvert verri heldur en í fyrstu gráðu tognun og er vöðvinn yfirleitt líka mjög aumur við snertingu.
Þriðju gráðu tognun: Er algjört rof á vöðvanum sjálfum. Þetta eru alvarleg meiðsli. Verkur kemur strax eins og bruna tilfinning eða stingandi sársauki. Aukin fyrirferð eða dæld getur fundist í vöðvanum þar sem tognunin hefur átt sér stað ásamt því að vera mjög aumur viðkomu. Nokkrum dögum eftir annarrar og þriðju gráðu tognun kemur fram mikið mar fyrir neðan tognunina sökum blæðinga sem verður í vöðvavefnum við rof á vöðvaþráðum.
Sú aðferð sem skal beita strax eftir Hamstrings tognun er svokölluð PRICE meðferð: Protection-Rest-Ice-Compression-Elevation. Hún er notuð til þess að minnka líkur á frekari blæðingu eða skemmd í vöðvanum. Einstaklingurinn þarf venjulega að draga úr eða hætta íþrótt sinni tímabundið en það er yfirleitt það sem keppnisíþróttafólk sleppir eða telur sig ekki þurfa á hvíld að halda eftir væga tognun. Hafa skal í huga að það þarf ekki mikið til þess að breyta fyrstu gráðu tognun í annarrar gráðu tognun eða annarri gráðu í þriðju gráðu tognun.
Algeng regla fyrir Hamstringstognanir er að hvíla í ca. 3 vikur við fyrstu gráðu tognun en 4 til 6 vikur við annarrar gráðu tognun. Ef algjört rof verður á Hamstrings eins og verður í þriðju gráðu tognun, er það lagað með skurðaðgerð og svo stífri endurhæfingu eftir aðgerð sem tekur a.m.k. 3 mánuði. Þetta eru svona viðmiðunar reglur fyrir hvíldartíma en alltaf getur munað einhverjum vikum á milli einstaklinga.


