Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 16. nóvember 2009 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Hvað þýðir að slíta krossband?
Skýringamynd sem sýnir hvar krossböndin koma
Skýringamynd sem sýnir hvar krossböndin koma
Mynd: Aðsend
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari er genginn í lið með Fótbolta.net og ætlar að svara fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag fyrstu fyrirspurninni sem fjallar um hamstrings meiðsli sem eru mjög algeng meðal fótboltamanna.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

Trausti Már Valgeirsson
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira.
Hvað þýðir að slíta krossband?
Hnéliðurinn er styrktur af mörgum liðböndum og vöðvum ásamt tveimur liðþófum sem vinna saman í því að gera hnéliðinn stöðugann. Krossböndin spila stórt hlutverk í að halda hnéliðnum stöðugum, tvö krossbönd eru í hvoru hné um sig þ.e. fremra- og aftara krossband.

Fremra krossbandið (Anterior Cruciate Ligament - ACL):
Mun algengara er að íþróttamenn rífi fremra krossbandið og gerist það aðallega við snúninga og stefnubreytingar leikmanna eða við högg á hné frá andstæðingi. Fremra krossbandið liggur djúpt inni í hnéliðnum og tengir lærlegginn (femur) við sköflunginn (tibia), virkni þess er að koma í veg fyrir framskrið á sköflung miðað við lærlegg ásamt því að varna við miklum snúningi á hnéliðinn.

Þegar krossbandið rifnar gerist það í flestum tilvikum ekki eitt og sér því oftast verða líka aðrir áverkar samhliða því á önnur liðbönd eða liðþófa einnig getur komið fram beinmar, en í fæstum tilvikum verða skemmdir á brjóski líka. Áverkar á fremra krossbandið hafa aukist mikið undanfarið sökum aukinnar ákefðar í æfingum og keppni þar sem margt er í húfi fyrir leikmenn og lið. Margir frægir atvinnumenn í fótbolta hafa rifið fremra krossbandið eins og t.d. Michael Owen, Robert Pires, Xabi Hernandez, Gabriel Heinze og Ruud Van Nistelroy.

Aftara krossbandið (Posterior Cruciate Ligament - PCL):
Aftara krossbandið er einnig staðsett djúpt inni í hnéliðnum en er stærra og sterkara en fremra krossbandið og hefur það hlutverk að koma í veg fyrir afturskrið á sköflung miðað við lærlegg. Það er sjaldgæfara að leikmenn slíti aftara krossbandið því það eru aðeins eitt til tvö af hverjum tíu krossbanda slitum er slit á aftara krossbandinu. Áverkar á aftara krossbandið verða við högg beint á efri hluta sköflungsins með beint hné eða þegar leikmaður dettur niður á bogin hnéin þar sem höggið kemur efst á sköflunginn.

Hvað þýðir þetta fyrir leikmenn?<
Næstu skref fara eftir því hvort leikmenn hafa rifið krossbandið að hluta til eða alveg og er það mat læknis hvort viðkomandi þurfi að gangast undir aðgerð eða ekki og hvort þarf að laga meira en bara krossbandið í hnéinu. Algengara er að leikmenn sem rífa fremra krossbandið þurfi að gangast undir aðgerð heldur en þeir sem rífa aftara krossbandið en þeir sem rífa aftara krossbandið ná oft að styrkja hnéið og halda því gangandi en ef þeir þurfa að gangast undir aðgerð á aftara krossbandinu þá eru þeir sendir í aðgerð erlendis, algengast til Svíþjóðar.

Slitið fremra krossband veldur því yfirleitt að leikmenn geta ekki tekið þátt í æfingum eða leikjum. Þessu fylgja verkir og bólgur í hnéinu, þeim finnst hnéið vera óstöðugt. Ef læknir metur að aðgerðar sé þörf þá gerist það yfirleitt mjög fljótlega eftir áverkann en þeir leikmenn sem er taldir eru ekki þurfa á skurðaðgerð að halda, eru sendir í sjúkraþjálfun og fara svo aftur í endurmat hjá lækni ca. 6 mánuðum eftir áverka ef lítill bati verður á stöðugleika og verkjum í hnéinu.

Í Skandinavíu eru allt að 90% fótboltaleikmanna sem ná aftur fyrri árangri eftir aðgerð. Eftir aðgerð á krossbandi tekur við a.m.k. sex mánaða stíft prógram hjá sjúkraþjálfara til þess að ná aftur upp eðlilegum styrk, hreyfanleika og stjórnun á hnéliðnum. Þetta er oft erfiður tími fyrir íþróttamenn þar sem þeir vilja komast sem fyrst aftur í sína íþrótt, helsta hættan er að íþróttamenn fari of fljótt af stað og eiga þá hættu á að slíta krossbandið aftur.
Slapp
banner