Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 30. nóvember 2009 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Hvað er fótboltaökkli?
Mynd: Aðsend
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari er genginn í lið með Fótbolta.net og ætlar að svara fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti fjallar í dag um svokallaða fótboltaökkla.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

Trausti Már Valgeirsson
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira.
Hvað er fótbolta ökkli?
Sumir fótbolta menn geta verið með vandamál sem kallast „fótbolta“ ökkli (anterior impingement syndrome) það er kallað fótbolta ökkli vegna þess að þetta vandamál sést yfirleitt í fótbolta mönnum en getur líka gerst hjá öðrum íþróttamönnum.

Þetta er vandamál sem lýsir sér sem verkur í framanverðum ökklaliðnum. Tvær skýringar hafa verið gefnar á ástæðu fyrir þessu vandamáli.

Annarsvegar við endurtekna kraftmikla réttu (plantar flexion )í ökkla sem kemur við að sparka í bolta sem getur valdið rofi í liðpokanum að framanverðu í ökklaliðnum og hinsvegar vegna kröftugrar beygju (dorsiflexion )í ökklanum sem getur valdið því að sköflungsbeinið (tibia) og völubeinið (talus) rekist saman og brotnað upp úr þeim og myndast beinútvöxtur (osteophyte) sem getur einnig myndast eftir síendurteknan núning á milli þessarra beina, beinútvöxturinn á þessum beinum getur farið svo að erta liðpokann að framanverðu.

Verkurinn kemur aðallega fram við ofmikla beygju í ökkla eins og við kraftmikla fráspyrnu, þetta er yfirleitt greint með sögu og röntgen mynd, hægt er að minnka óþægindin með teipingu eða spelku sem kemur í veg fyrir ofmikla beygju í ökkla.

Aðalmálið er að ná bólgunni niður í liðpokanum með stuðningi og æfingum, stundum eru bólgueyðandi sterum sprautað inn í liðpokann. Hægt er að fjarlægja beinútvöxtinn með skurðaðgerð ef vandamálið er orðið virkilega slæmt. Batinn er yfirleitt mjög góður, líka eftir skurðaðgerð, ca. 4-6 vikur. Langtíma áhrif eru hinsvegar óþekkt og möguleiki er að vandamálið taki sig upp aftur seinna meir.
Slapp
banner