Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 08. desember 2009 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Hvað er vatnshné?
Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari er genginn í lið með Fótbolta.net og ætlar að svara fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag fyrirspurn um svokallað vatnshné..

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

Trausti Már Valgeirsson
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira.
Hvað er vatnshné?
Sæll og blessaður. Mér þætti gaman að vita betur um svokallað "Vatnshné" er. Ég byrjaði að fá slíkt fyrir sirka ári síðan og hefur það verið að dúkka upp öðru hverju síðan þá. Ég fór til læknis og varð engu vísara um hvað ég ætti að gera til að losna við þetta. Væri frábært ef ég fengi góða skýringu á þessu fyrirbæri.

Kveðja Stefnir.


Komdu sæll Stefnir,
Vökvasöfnun í hné er stundum kallað vatnshné þegar mikill vökvi/bólga safnast fyrir í hnéliðnum, oft verður vökvinn það mikill að ekki sést lengur móta fyrir hnéskelinni og mikill þrýstingur myndast inni hnéinu við beygju (flexion).

Algengast er að vökvi myndist í hné hjá fólki með slitgigt í hnjánum en ýmsir áverkar geta einnig orsakað mikla vökvasöfnun í hnéinu, t.d. rifinn liðþófi eða liðbandaáverkar, algengt hjá einstaklingum með krossbandaslit. Vökvasöfnun getur einnig myndast fyrir utan hnéliðinn sem kallast þá bursitis.

Líklegasta ástæðan fyrir vökvasöfuninni er að það verður einhver erting inni í hnéliðnum sem veldur þessari vökvasöfnun hjá þér og er mikilvægt að láta greina það af sérfræðingi sem fyrst svo hægt sé að taka á vandamálinu. Flestir láta tappa vökvanum af hnéinu til þess að minnka þrýsting og verki en líklegt er að vökvinn komi aftur þar sem ertingin er ennþá til staðar inni í hnéinu.

Kv. Trausti Már
Slapp
banner