Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 20. desember 2009 07:03
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Guardian 
Benítez tönglaðist á að dómarinn hafi verið fullkominn
<b>Fullkominn?</b><br>Rafael Benítez á leiknum í gær.
Fullkominn?
Rafael Benítez á leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool mætti í undarlegt viðtal við blaðamenn eftir 2-0 tap gegn Portsmouth á Fratton Park í gær þar sem hann svaraði flestum spurningum blaðamanna með því að dómarinn hafi verið fullkominn sem greinilega átti að vera kaldhæðni.

Javier Mascherano fékk að líta rauða spjaldið eftir samskipti sín við Tal Ben Haim í leiknum og Benítez fannst það hafa breytt leiknum og var greinilega ekki sáttur við dómarann þar. Hér á eftir fer samtal Benítez við fréttamennina.

,,Ég hef séð endursýninguna og mér fannst þetta ekki brottvísun, en dómarinn var samt fullkominn. Hann gerði engin mistök. Núna er Javier meiddur, og ég segi það aftur, dómarinn gerði engin mistök," byrjaði Benítez.

Við skiljum ekki, þú segir að dómarinn hafi ekki gert mistök?
,,Nei, hann var fullkominn. Fullkominnn. Hann var fullkominn."

Afhverju var þetta ekki brottvísun þá?
,,Ég hef séð endursýninguna, mér fannst þetta ekki brottvísun, en samt. Fullkominn."

Var einhver ákveðin ástæða fyrir því að leikmenn eins og Gerrard og Torres náðu ekki saman og stóðu sig ekki?
,,Nei, dómarinn var svo fullkominn, svo Torres, átti ekki í neinum vandræðum."

Þið voruð marki undir fyrir brottvísunina, almennur áhorfandi hefði ekki sagt að þið hafið stjórnað leiknum í hálfleik. Afhverju segirðu að það hafi breytt leiknum þegar þið voruð þegar marki undir?
,,Ef þið sjáið að við höfum skapað nokkur tækifæri, og vorum mikið með boltann í fyrri hálfleik, þá var ég viss um að við gætum breytt leiknum."

Getur þú ekki útskýrt það sem þú sagðir um dómarann?
,,Fullkominn. Enginn mistök."

En þú sagðir að hann hafi gert mistök með brottvísuninni.
,,Fullkominn."

Finnst þér að Torres hafi verið heppinn að sleppa við refsingu fyrir olnbogaskotið?
,,Dómarinn var fullkominn."

Fyrr á tímabilinu hafði Benítez verið fundinn sekur en slapp við refsingu þegar hann gerði lítið úr dómara með því að taka upp gleraugu og velta þeim fyrir sér aðspurður um frammistöðu dómara.
Athugasemdir
banner
banner