Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag fyrirspurn um svokallað vatnshné..
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Spurning:
Sæll.
Getur sagt mér afhverju beinhimnubólga myndast? Ég er búin að vera með þetta í rúm tvö ár og þetta virðist ekkert vera að batna og þessu fylgir gríðarlegur sársauki við álag.
Svar Trausta:
Komdu sæll,
Beinhimnubólga (shin splints)er í raun ekki sjúkdómur heldur er þetta orð eða samheiti sem notað er fyrir ákveðin einkenni sem koma við álag og lýsa sér yfirleitt sem verkir framan á sköflungi (tibia) sem kemur eftir að einstaklingur byrjar í þjálfun eftir hvíldartímabil eða getur þróast eftir langvarandi álag.
Beinhimnubólga getur orsakast af nokkrum þáttum, hún getur verið vegna álagsbrota í sköflungnum sem kemur fram sem verkur framan á beininu og orsakast af litlum sprungum sem myndast í beininu eftir nýtilkomið álag og getur verið erfitt að greina það á röntgen mynd, hún getur einnig komið vegna bólgu í beinhimnunni og aðliggjandi sinum og vöðvum í sköflungnum, þá verða bæði beinið og vöðvar í kringum sköflunginn aumir viðkomu.
Bandvefshimnan sem umlykur vöðvana í kringum sköflunginn gefur hún lítið eftir og þegar vöðvarnir þenjast út, myndast mikill þrýstingur inn í vöðvahólfinu sem veldur því að blóðflæði minnkar til vöðvanna og þeir fá þá ekki nægilegt súrefni sem framkallar verk framan á sköflungnum sem hverfur svo aftur við hvíld um leið og blóðflæðið verður aftur eðlilegt.
Hvíld er mikilvægasti þátturinn til þess að losna við verkina og byrja svo hægt og rólega aftur í æfingum. Ef verkir hverfa ekki eftir 3-4 mánaða hvíld getur þurft að losa um bandvefshimnuna til þess að létta á verkjunum.
Kv.Trausti Már



