Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag fyrirspurn um svokallað vatnshné..
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Spurning:
Sæll Trausti,
Hvað orsakar "ofvöxt" beinsins neðan við hné ? Held að beinið kallist "Tibia".
Ég veit til þess að margir ungir íþróttamenn hafa lent í því að beinið skagi út og mikill sársauki fylgir t.d. knattspyrnuiðkun.
Sonur minn, 13 ára, neyddist til að hætta knattspyrnuiðkun vegna verkja. Læknar og sjúkraþjálfarar sem hafa skoðað hann hafa talað um 3 ár og þá ætti þetta að lagast en þetta byrjaði hjá honum þegar hann var 10 ára og hann er að verða 14 ára í þessum mánuði og hnéið ekkert að lagast. Er eitthvað hægt að gera í þessum meiðslum?
Svar Trausta:
Komdu sæll,
Þetta sem þú lýsir er mjög algengt hjá börnum og unglingum sem er ennþá að taka út sem mestan vöxt, yfirleitt á aldrinum 12 til 18 ára og stunda íþróttir sem krefjast mikið af hoppum og spörkum. Þetta vandamál kallast á fræðimáli „Osgood-Schlatter“ .
Sinin (patellar tendon)sem liggur frá neðri hluta hnéskeljarinnar festist niður á sköflungsbeinið (Tibia) á beinhnjótu (Tibial tuberosity) sem getur orðið aum og verkir geta komið í hana við kraftmikla réttu (extension) á hné, samanber hopp og spörk. Við mikið og síendurtekið átak á festuna hjá þessu krökkum getur beinhnjótan stækkað og verið mjög áberandi .
Það sem best er að gera fyrir þessa krakka er að hanna æfingar sem hentar þeim til þess að hvíla svæðið sem mest í nokkrar vikur eða jafnvel hvíla öll hopp og spretti í nokkra mánuði ef þetta er þeim mun verra og byrja svo stigvaxandi álag aftur. Það eiga allir að ná sér af þessu, það er hinsvegar einstaklingsbundið hvenær viðkomandi klárar að taka út fullan líkamsvöxt.
Kveðja, Trausti Már




