Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 11. janúar 2010 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Hvaða hlutverk hafa liðþófar í hnjám?
Mynd: Aðsend
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

Trausti Már Valgeirsson
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira.
Hvaða hlutverk hafa liðþófar í hnjám?

Spurning:
Komdu sæll Trausti,

Hvaða hlutverk hafa liðþófar í hnjám?

Svar Trausta:
Hnéliðurinn hefur tvo liðþófa (meniscus), miðlægan(medial) og hliðlægan(lateral). Hlutverk þeirra er að draga úr álagi og höggi á liðbrjóskið í hnéliðnum þ.e. liðbrjóskið á sköflungnum (tibia) og lærleggnum (femur)og einnig veita liðþófarnir aukinn stöðugleika í hnéinu.

Liðþófameiðsli geta gerst eitt og sér eða í tengslum við aðra liðbandaáverka í kringum hnéið. Til dæmis eru um 75% þeirra sem rífa fremra krossbandið (ACL) hljóta einnig áverka á liðþófa.

Áverki á miðlæga liðþófann eykur töluvert álagið á liðbrjóskið í miðlæga hluta hnésins sem eykur töluvert líkur á sliti. Samt er áverki á hliðlæga liðþófann verri heldur en sá miðlægi vegna þess að hann spilar meira hlutverk í starfrænum(functional) stöðugleika hnésins sem getur haft meiri áhrif á virkni hnésins til lengri tíma. Áhættan á að þróa með sér slit í hnéinu fer eftir því hversu mikið liðþófinn er skaðaður.
Kv.Trausti Már.
Slapp
banner
banner
banner