Heimild:  |  
mán 18.jan 2010 13:46 Þórður Már Sigfússon,
Helgi og Garðar að ganga til liðs við Hansa Rostock
Helgi Valur Daníelsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Tveir íslenskir landsliðsmenn eru á leiðinni til þýska B-deildarliðsins Hansa Rostock og munu þeir að öllum líkindum skrifa undir samninga við félagið í þessari viku.

Rostock er við það að komast að samkomulagi við Elfsborg um kaup á miðjumanninum Helga Val Daníelssyni og þá hafa forráðamenn þýska liðsins boðið Garðari Jóhannssyni eins árs samning eftir að framherjinn stóð sig vel á æfingum hjá liðinu undir lok síðustu viku.

Helgi Valur hefur verið undir smásjá Rostock undanfarna mánuði og hefur Elfsborg þegar hafnað nokkrum tilboðum frá þýska liðinu í leikmanninn. Hins vegar hafa viðræður félaganna hafa gengið vel undanfarna daga og á einungis eftir að ganga frá nokkrum formsatriðum áður en gengið verður endanlega frá málinu.

Kaupverðið er sagt muni nema fjórum milljónum sænskra króna eða rúmum 70 milljónum íslenskra króna.

,,Þetta er besta lausnin fyrir alla aðila. Félagið (Elfsborg) vill fá pening fyrir mig og ég vill ekki framlengja samninginn,” sagði Helgi í samtali við Expressen.

Garðar hugsanlega með gegn 1860 Munchen um næstu helgi

Þýska dagblaðið Bild greinir síðan frá því í dag að Garðar sé farinn aftur heim til Íslands eftir fimm daga dvöl hjá félaginu með eins árs samningstilboð í farteskinu og vilja forráðamenn þýska liðsins að hann geri upp hug sinn sem fyrst.

Garðar, sem yfirgaf herbúðir norska liðsins Fredrikstad, stóð sig vel á æfingum hjá Rostock og hrósaði þjálfari liðsins, Andreas Zazhhuber, honum sérstaklega fyrir frammistöðuna. Hann mun væntalega vera í leikmannahópi Rostock sem sækir 1860 Munchen heim um næstu helgi.

,,Annað hvort mun hann samþykkja eða neita tilboðinu," sagði René Rydliewicz, framkvæmdarstjóri Hansa Rostock, í samtali við Bild.

Hansa Rostock er sem stendur í 14. sæti þýsku B-deildarinnar.
Nýjustu fréttirnar