Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira.
Viðbeinsbrot
Brotið viðbein er algengt axlarvandamál. Viðbeinið brotnar yfirleitt þegar viðkomandi dettur á útréttan handlegg og höggið sem kemur við það berst í gegnum handlegginn og upp í viðbeinið sem veldur því að það gefur eftir og brotnar. Viðbeinið tengir axlargrindina við líkamann og spilar heilmikið hlutverk við hreyfingar á axlarliðnum. Þegar viðbeinið brotnar í börnum verður yfirleitt lítil hreyfing á brotinu og það grær aftur mjög fljótlega á 2-3 vikum. Í eldri einstaklingum þar sem þarf meiri kraft til þess að viðbeinið gefi sig og brotni, verður oft hreyfing á brotinu, þar sem beinendarnir tveir geta farið úr skorðum og oft þarf þá að reyna koma brotinu í rétt far aftur en yfirleitt er ekkert gert við þessari tegund af beinbroti og það látið gróa, en viðbeinið getur verið sjáanlega skakkt það sem eftir er og jafnvel myndast hnúður yfir þeim stað sem viðbeinið brotnaði. Viðbeinsbrot grær venjulega á 6 vikum. Þessu fylgja yfirleitt mikil verkir og ómögulegt getur verið að hreyfa handlegginn í fyrstu. Best er að halda handleggnum sem mest hreyfingarlausum á fyrstu vikum á meðan mestu verkirnir eru til staðar, það hjálpar viðbeininu að gróa og minnkar einnig verki. Á meðan viðbeinið er að jafna sig skiptir miklu máli að halda hreyfingum í olnboga og úlnlið þeim megin sem brotið er vel hreyfanlegum til þess að koma í veg fyrir stirðleika. Byrja þarf fljólega á axlaræfingar þegar verkir fara minnkandi og auka álagið smátt og smátt, engin átök á axlarliðinn fyrr en fullri hreyfingu er náð. Trausti Már

