Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 31. janúar 2010 16:41
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Spurningakeppni Fótbolta.net: Selfoss sigraði Grindavík
Jóhann Ólafur Sigurðsson kom Selfyssingum áfram.
Jóhann Ólafur Sigurðsson kom Selfyssingum áfram.
Mynd: Óli Brynjar
Sveinbjörn Jónasson krækti í 13 stig en það dugði ekki til.
Sveinbjörn Jónasson krækti í 13 stig en það dugði ekki til.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Páll Magnússon er stuðningsmaður ÍBV.
Páll Magnússon er stuðningsmaður ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þessa dagana stendur yfir spurningakeppni meðal liðanna í Pepsi-deild karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7.

Í gær mættust Selfoss og Grindavík. Jóhann Ólafur Sigurðsson, markvörður Selfyssinga, hafði þar betur gegn Sveinbirni Jónassyni úr Grindavík. Selfoss er þar með komið í 8-liða úrslit líkt og Fylkir, Fram og KR.

Hér að neðan má sjá spurningarnar sem að leikmennirnir fengu að glíma við.

Hraðaspurningar:

Frá hvaða landi er dómarinn Massimo Busacca?
Sviss

Með hvaða liði leikur Margrét Lára Viðarsdóttir?
Kristianstad

Frá hvaða landi er Gilles Ondo, framherji Grindvíkinga?
Gabon

Hvernig fór leikur Íslands og Suður-Afríku síðastliðið haust?
1-0

Hver er þjálfari AC Milan?
Leonardo

Hvaða tékkneska leikmann keypti Man. Utd eftir EM 1996?
Karel Poborsky

Hvað heitir liðið sem Teitur Þórðarson þjálfar?
Vancouver Whitecaps

Hjá hvaða liði kláraði Gaizka Mendieta feril sinn?
Middlesbrough

Hvað ár urðu Englendingar heimsmeistarar?
1966

Hvaða ár urðu Grikkir Evrópumeistarar?
2004

Hvað taka mörg lönd þátt í HM?
32

Með hvaða liði leikur Shola Ameobi?
Newcastle

Frá hvaða landi er Martin Skrtel varnarmaður Liverpool?
Slóvakía

Hver skoraði sigurmark Leeds gegn Manchester United fyrr á árinu?
Jermaine Beckford

Hver var markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð?
Nicolas Anelka

Víxlspurningar:

Enginn stuðningsmaður Manchester United gleymir því þegar Ole Gunnar Solskjær skoraði sigurmark liðsins gegn FC Bayern í úrslitaleik meistaradeildarinnar árið 1999. Teddy Sheringham hafði jafnað metin skömmu áður en hver skoraði mark FC Bayern?
Mario Basler

Árið eftir vann Real Madrid meistaradeildina með 3-0 sigri á Valencia. Þeirra skæða framherja par, Raúl og Morientes, skoruðu sitt markið hvor. Hver skoraði þriðja markið í leiknum?
Steve McManaman

Hverjir léku til úrslita í bikarkeppni karla árið 2001?
Fylkir og KA

Talandi um KA. Það tapaði mögnuðum bikarúrslitaleik gegn Val, 5-2, þar sem Anthony Karl Gregory fór á kostum. Hvaða ár var það?
1992

Reykjavíkurmótið er nú í fullum gangi. Hverjir eru ríkjandi meistarar í þeirri mögnuðu keppni?
KR

2008 vann lið ÍR Reykjavíkurmótið heldur betur óvænt en það var eina liðið sem lék þá í annarri deild. Hvaða lið vann ÍR í úrslitaleiknum?
Fram

Þá til Norðurlanda. Rosenborg vann norska meistaratitilinn þrettán ár í röð, samfleytt frá 1992-2004. Hvaða lið stöðvaði sigurgöngu þess árið 2005?
Vålerenga

FCK hefur einnig verið iðið við kolann í Danmörku frá stofnun liðsins. Það hefur unnið danska titilinn sex sinnum á síðustu níu árum. Bröndby hefur stolið titlinum tvisvar þar á milli en hvaða lið vann óvænt í Danmörku tímabilið 2007-2008?
AaB

Á listanum yfir tíu markahæstu menn ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi eru fjórir menn sem ekki eru Englendingar. Hvaða menn eru í 3. og 8. sæti listans? Það eru Frakki og Hollendingur.
Thierry Henry og Jimmy Floyd Hasselbaink

Hinir tveir leikmennirnir verma níunda og tíunda sæti listans. Þeir eru frá Trínidad og Tóbago og svo Írlandi. Hvað heita þeir?
Dwight Yorke og Robbie Keane.

Valflokkaspurningar:

Frægir stuðningsmenn:
1. stig: Frægur tónlistarmaður var eitt sinn eigandi Watford. Hann hefur lengi verið harður stuðningsmaður liðsins. Hver er maðurinn? Elton John

3. stig: Með hvaða þremur íslensku liðum halda fjölmiðlamennirnir Haukur Hólm, Páll Magnússon, Jóhannes Ásbjörnsson? KR, ÍBV og Fylkir.

5. stig: Þorsteinn Joð Vilhjálmsson, fyrrum spyrill í Viltu vinna milljón?” tengist tveimur félögum í efstu deild og styður þau væntanlega bæði í dag. Þorsteinn lék með einu liði á sínum tíma og sonur hans leikur með öðru liði. Hvað heita liðin, hvað heitir sonur hans og hvað skoraði hann mörg mörk í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar? Fram og Fylkir. Tómas Joð Þorsteinsson, 0 mörk.

Lágvaxnir þjálfarar:

1.stig: Sammy Lee, aðstoðarstjóri Liverpool, er líklega einn minnsti aðstoðarmaðurinn í fótboltaheiminum. Árið 2007 var Lee ráðinn knattspyrnustjóri hjá félagi í ensku úrvalsdeildinni. Liðinu gekk illa undir stjórn Lee og hann entist einungis nokkra mánuði í starfi. Hvaða lið er þetta? Bolton Wanderers

3. stig: Leifur Garðarsson, þjálfari Víkings R., verður seint talinn sá hávaxnasti í bransanum þó að hann hafi getið sér gott orð sem körfuboltadómari á sínum tíma. Við spyrjum: Hvaða lið styður Leifur í enska boltanum og hvert er millinafn hans? Everton, Sigfinnur

5. stig: Gianfranco Zola, Chelsea goðsögn, stýrir liði West Ham í ensku úrvalsdeildinni milli þess sem að hann er grunaður um að heimsækja asísk vændishús. Hjá hvaða liði var Zola aðstoðarþjálfari áður en hann tók við West Ham og hver þjálfaði það lið? U21 árs landslið Ítalíu – Pierluigi Casiraghi
Slapp
banner
banner
banner