Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 05. febrúar 2010 22:06
Magnús Már Einarsson
Reykjavíkurmótið: Fram í undanúrslit eftir sigur á Leikni
Almarr skoraði sigurmarkið fyrir Fram.
Almarr skoraði sigurmarkið fyrir Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Fram 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Almarr Ormarsson

Framarar eru komnir í undanúrslit Reykjavíkurmótsins eftir 1-0 sigur á Leikni í B-riðli mótsins. Almarr Ormarsson skoraði eina markið þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka.

Leikurinn var mjög bragðdaufur og fátt um fína drætti hjá báðum liðum. Leiknismenn voru þó líklegri ef eitthvað var rétt áður en Fram tryggði sér sigurinn.

Tómas Leifsson fékk mjög gott færi í seinni hálfleiknum en Eyjólfur Tómasson varði með góðu úthlaupi. Það var Alexander Veigar Þórarinsson sem lagði upp sigurmarkið með fyrirgjöf frá vinstri og skoraði Almarr af stuttu færi.

Fram er því öruggt áfram en Leiknismenn hafa lokið keppni í mótinu. Lokaleikur riðilsins verður viðureign Fjölnis og Fylkis á sunnudagskvöld. Fjölnir þarf að vinna þann leik með allavega tveggja marka mun til að tryggja sér sæti í undanúrslitum, annars fer Fylkir áfram.
Slapp
banner
banner