Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 07. febrúar 2010 09:44
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Goal.com 
Daniel Alves ekki með Barcelona næstu þrjár vikurnar
Evrópumeistarar, Barcelona verða án Daniel Alves næstu þrjár vikurnar eftir að hægri bakvörðurinn kenndi sér meins í upphitun fyrir leik liðsins gegn Getafe í gærkvöldi.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá spænska íþróttablaðinu Marca, átti Alves að vera í byrjunarliði Katalóníuliðsins er meiðsli í hægri fæti gerðu vart við sig hjá leikmanninum.

Talið er líklegt að Alves muni missa af næstu þremur leikjum Barcelona, gegn Atletico Madrid og Racing Santander í spænsku deildinni auk fyrri viðureignar Börsunga á móti Stuttgart í Meistaradeild Evrópu.
Slapp
banner