Sigurður Jónsson byrjar vel sem þjálfari Enköping en hann stýrði liðinu í sínum fyrsta leik í gær.
Enköping sigraði IFK Eskilstuna þá örugglega 5-0 í æfingaleik en þetta var fyrsti leikur liðsins síðan að Sigurður tók við stjórnartaumunum fyrr í vetur.
Linus Bylin, Andreas Andersson, Jimmy Kristiansson, Mikael Tuhkanen og hinn 17 ára gamli Joel Rajalakso skoruðu mörkin.
Enköping leikur í fjórðu efstu deild í Svíþjóð en liðið féll úr 2.deildinni þar í landi síðastliðið haust.


