Birmingham City 2 - 1 Wolverhampton Wanderers
0-1 K. Doyle ('42)
1-1 K. Phillips ('80)
2-1 K. Phillips ('85)
0-1 K. Doyle ('42)
1-1 K. Phillips ('80)
2-1 K. Phillips ('85)
Það var grannaslagur á St Andrews vellinum þegar Wolves heimsótti Birmingham.
Eina mark leiksins kom þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik þegar Kevin Doyle skoraði fyrir gestina.
Matt Jarvis gaf fyrir og boltinn fór í varnarmann Birmingham og Doyle var fyrstur að átta sig á stöðu mála og skoraði.
Það var svo þegar tíu mínútur voru eftir að gamli refurinn og varamaðurinn. Kevin Phillips jafnaði leikinn fyrir heimamenn þegar hann skoraði af stuttu færi.
Phillips var ekki hættur því aðeins fimm mínútum síðar fékk hann sendingu inn í teig Wolves. Hann tók vel á móti boltanum og setti hann laglega í netið.
Lokastaðan 2-1 sigur heimamanna sem hafa verið góðir á þessu tímabili.



