Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 07. febrúar 2010 17:48
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Phillips: Fólk afskrifar mann um þrítugt
Kevin Phillips sem var hetja Birmingham í sigri liðsins á erkifjendum sínum í Wolves í dag segir að fólk afskrifi leikmenn þegar þeir eru að verða þrítugir.

,,Ég held að ég hafi sýnt að ég geti gert gagn, fólk afskrifar þig þegar þú ert þrítugur en núna er 36 ára og geri enn gagn" sagði Phillips.

,,Það er gaman að fá að spila, ég hef ekki fengið mikinn tíma undanfarið."

,,Ég sagði við sjálfan mig að ég þyrfti að vera þolinmóður á þessari leiktíð, ég vissi að ég myndi fá sénsinn."

,,Þú verður að vera sterkur andlega, þú verður að trúa því að þú fáir sénsinn."

,,Þetta er stuttur ferill og ég veit að ég er ekki langt frá því að hætta."

,,Ég vil spila eins lengi og ég get á hæsta stigi og augnablik eins og í dag láta mann vilja spila lengur."

Slapp
banner