Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 07. febrúar 2010 17:57
Hörður Snævar Jónsson
England: Sjóðheitur Drogba kláraði Arsenal
Chelsea 2 - 0 Arsenal
1-0 D. Drogba ('8)
2-0 D. Drogba ('23)

Arsenal tapaði fyrir Chelsea á Stamford Bridge í dag og var munurinn á liðunum, Didier Drogba.

Drogba sem spilaði sinn annan leik fyrir Chelsea síðan hann kom úr Afríkukeppninni skoraði bæði mörk liðsins.

Arsenal steinlág síðustu helgi gegn Manchester United og spilaði þá illa en í dag átti liðið fínan leik.

Fyrsta mark leiksins kom eftir átta mínútur og það var títtnefndur, Drogba sem skoraði það. John Terry skallaði boltann eftir hornspyrnu á fjærstöng þar sem Drogba var mættur og skoraði.

Eftir markið voru leikmenn Arsenal miklu betri og fengu frábært færi þegar Cesc Fabregas átti frábæra sendingu á Andrei Arshavin sem skaut í fyrsta en Petr Cech varði.

Það var svo á 23. mínútu sem Drogba skoraði annað mark sitt og annað mark Chelsea þvert gegn gangi leiksins. Lampard vann boltann og geystist upp völlinn, hann gaf á Drogba sem lék á Gael Clichy og setti boltann framhjá Manuel Almunia.

Frábærlega gert hjá Drogba sem var þarna að skora sitt sautjánda mark í deildinni á þessari leiktíð.

Hvorugu liðinu tókst að skora í síðari hálfleik og lokastaðan því 2-0 sigur fyrir heimamenn.

Arsenal er nú níu stigum á eftir Chelsea sem komið er á toppinn og sjö stigum á eftir Manchester United.

Liðið á afar mikilvægan leik gegn Liverpool í vikunni en Liverpool er að narta í hæla Arsenal og er einungis fimm stigum á eftir Arsenal.
Slapp
banner
banner
banner